Samvinnan - 01.09.1927, Blaðsíða 56
230
SAMVINNAN
æskuhugmyndir sínar mótaðar í þeim hluta landsins, þar
sem verslunarkúgunin var einna tilfinnanlegust. Húsavík,
þar sem Þingeyingar áttu aðalverslunarstað var nefnilega
ein þeirra hafna, sem kaupmenn skirðust mest við að
halda uppi siglingum til. Hefir þar því oft verið vöru-
skortur. Skúla er lýst svo sem ungum dreng, að hann hafi
verið óstýrilátur í meira lagi en greindur og fylginn sér.
Óstýrilæti er oft einkenni þeirra bama, sem hungrar eftir
verkefnum. Skúli hefir snemma heyrt einokunarkaup-
mönnum hallmælt og komist að raun um, að það var eigi
að ástæðulausu. Hann hafir eflaust hlýtt á marga rauna-
sögu, sem fátækir bændur, sveitungar hans, sögðu um illa
meðferð, er þeir höfðu sætt í kaupstaðnum. Hann hefir
kynst því vel, hve lítið sveitafólkið bar úr býtum fyrir
æfilangt strit. Getur verið, að hann hafi oft orðið sjónar-
vottur að því, er vinnulúnum manni, sem stöðugt hafði
kepst við að gera skyldu sína, var hrundið frá búðar-
borðinu með þeim ummælum, að hann væri amlóði og
ónytjungur. Réttlætistilfinning þessa ríklundaða og gáf-
aða bams hefir áreiðanlega hlotið mörg sár og djúp.
Óvægni hans og. harðleikni við einokunarkaupmennina síð-
ar á æfinni hefir án efa átt rót sína að rekja til sviðans
í þessum gömlu sárum.
Hvað var einokunin danska á Islandi? Hver var þessi
afaróvinsæla stofnun ? Þessi ægilegi óvættur, sem svo
megnan óhug hefir vakið í meðvitund þjóðarinnar, að
hrollur fer um menn enn í dag, þegar hún er nefnd á
nafn, þótt nú hafi eigi á henni bært í meira en heila öld?
Einokunin var fyrst og fremst í því fólgin, að lands-
menn voru sviftir afskiftum og íhlutunarrétti um alia
verslun — í öðru lagi í því, að ákveðnum og takmörkuð-
um fjölda erlendra manna, er langoftast skildu lítið tungu
íslendinga var fenginn í hendur allur verslunarreksturinn.
Hið fyrra hafði frámunalega óheillavænlegar afleiðingar.
Alþýða manna hætti að hugsa um við-
s k i f t a m á 1 og gerðist óhæfilega fáfróð um þau. Versl-
unin var eigi rekin með hagsmuni almennings fyrir aug-