Samvinnan - 01.09.1927, Blaðsíða 50
224
SAMVINNAN
f é 1 a g og- k a u p f é 1 a g. Er þá og mikil von að kaupfé-
lagið þróist og dafni á líkan hátt og í nágrannahéröðun-
um. Mun þá Skagafjörður fyrst njóta sín, sem hjarta
Norðurlands.
Tvö kaupfélög starfa í sýslunni, önnur en Kaupfélag
Skagfirðinga, á Hofsósi og Haganesvík í Fljótum. Eru þau
bæði á framfaraskeiði og viðreisnin eftir kreppuna 1920
gengur þar allvel.
XIV.
Vegirogpóstflutningar. Eger orðinn allvel
kunnugur vegakerfi landsins. Hefi farið um helstu þjóð-
vegina alla leið austan af Síðu og kring land norður um
frá Reykjavík og austur á Hérað. Er eg og nokkuð kunn-
ugur hvernig sveitir liggja að vegum og flutningaþörfum.
Eg hefi ferðast mikið með póstum í öllum landshlutum.
Hefi eg undrast seinaganginn og sleifarlagið á póstflutn-
ingunum.
Nú er svo langt komið framförunum, að póstamir
eru næstum einir um klyfjaburð, víðsvegar um land. Póst-
urínn með klyfjahestana mætir sleðum, vögnum og bif-
reiðum. Hann fer fram hjá akbrautunum, fer óþarfa króka
út úr straumlínum héraðanna, á bæi sem einhver héraðs-
ríkur stjómarvinur hefir búið á fyrir æfalöngu.
Póstflutningar okkar eru thinir úreltustu. í yfir-
stjórn póstmálanna ríkir íhaldssemi og svefnmók, svo
hinar auðsæustu endurbætur fást ekki fram þótt smáar
séu, hvað þá hinar meiri.
Versti þröskuldurinn á endurbótum póstferðanna eru
vegirnir. Ef póstsamband á að verða sæmilegt um landið
þurfa að koma bílvegir alla þá leið kringum landið, sem
auðið er að leggja slíka vegi, eða milli Víkur í Mýr-
d a 1, vestan um land, til R e y ð a r f j a r ð a r eystra. Bið
eg nú lesenduma að leggja með mér í langferð nokkra og
athuga vegina.
Eins og kunnugt er, er nú kominn bílvegur frá
Reykjavík austur að Rangá. Vegi þeim þarf að halda