Samvinnan - 01.09.1927, Blaðsíða 48
222
S A M V I N N A N
kynslóða verk frá einokunaröldinni. Eg minnist mörg-
hundruð ára gamalla húsa er eg sá á Hofsósi, minnisvarða
einokunarverslananna dönsku. Veggir þeiiTa eru h 1 a ð n-
i r ú r t r j á m. Sú var tíð að mikill hluti þessai’a héraða
beggja tróð göturnar að Hofsósi og versluðu þar í hinum
fornu húsum. En nú eru risin upp ný kauptún og nýir
verslunarhættir.
Þrír eru verslunarstaðir í Húnavatnssýslu, og þrjú
kaupfélög hafa þar heimili. Vestursýslan verslar á
Hvammstanga. Kaupfélagið þar hefir átt örðuga daga og
orðið fyrir nokkrum óhöppum. En þar hefir verið gripið
fast í taumana og stýrt á rétta götu. Virðist nú
kaupfélagið ætla að ná öllum yfirráðum þar.
Biönduósfélagið, Kaupfélag Húnvetninga, er elst og
styrkast. En á Blönduósi er höið samkepni. Einna hörð-
ust og ákveðnust er baráttan milli samvinnu- og kaup-
manna, þar og í Vestur-Skaftafellssýslu, af þeim héröð-
um sem eg hefi farið um. Er þó á hvorugum staðnum
vandi að sjá hver sigra muni. Kaupfélag Húnvetninga gat
í fyrra birt samanburð á verði sínu og kaupmanna, sem
enginn andstæðingur hefir reynt að hrekja. Kom i ljós að
verð kaupfélagsins væri 8% betra. Hver mun þá hagur af
kaupfélagsverslun, þar sem kaupmenn teygja sig minna
eftir kaupfélögunum, þar sem samkepnin er vægari?
í Austur-Húnavatnssýslu hefir starfað sérstakt slát-
urfélag á Blönduósi. En nú er það fyrir glöggskygni sam-
vinnumanna þar að renna saman við kaupfélagið. Hér-
iendir staðhættir krefjast þess að verslun með innlendu
og erlendu vöruna fari fram hjá sama félagi ef mögulegt
er. —
V i n d h æ 1 i s h r e p p u r er næstum einn um versl-
unarsókn nú orðið að kaupstaðnum á Skagaströnd.
Er og kaupfélagið þar eitt um verslun og því allstórt, þó
svæðið sé lítið. Enda er mikil framleiðsla í hreppnum til
lands og sjávar.
Héraðið inn af Skagafjarðarbotni, er mikið og þétt-
býlt eins og áður er sagt. Alt þetta hérað og Skaginn að