Samvinnan - 01.09.1927, Blaðsíða 54
Y er slun arhugsj ónir
Skúla Magnússonar.
Það verður ekki dregið í efa, að Skúli Magnússon er
einn þeirra manna er ósleitilegast hafa barist fyrir bættu
verslunarfyrirkomulagi hjá þjóð vorri. Sjálfsagt er óhætt
að segja, að hann hafi átt mestan þátt í afnámi dönsku
einokunarverslunarinnar. Æfistarf hans var að grafa und-
an henni grunninn, ef svo má að orði komast. Og líklega
má fullyrða, að þegar bornir eru saman þeir þjóðskör-
ungar, sem sagan greinir frá, verði Skúli Magnússon
jafnan í allra fremstu röð meðal þeirra manna, sem unnið
hafa að því að gera verslun íslendinga innlenda og heil-
brigða, enda mun mega fullyrða, að enginn íslendingur
hefir haft dýpri og staðbetri þekkingu á verslunarmálum
sinnar aldar en einmitt hann. Það er því eigi nema eðli-
legt, að nútíðamienn líti upp til þessa frumherja og telji
skoðanir hans máli skifta. En ágreiningur er um álit hans
og fyrirætlanir. Um eitt eru allir sammála, að hann hafi
verið ákveðinn andstæðingur einokunarverslunarinnar
eins og hún var á íslandi um daga hans. En þegar spurt
er: Hvað vildi hann? Hvað átti að koma í stað einokunar-
innar? skiftast leiðir. Nú, þegar verslunarskipulagið er
orðið eitt mesta ágreiningsmál þjóðarinnar, vilja ýmsir
flokkar telja hann brautryðjanda sinnar stefnu hér á
landi. Sumir telja, að hann hafi verið forvígismaður
venjulegrar kaupmensku, sem misnotar um eðli sitt orðið
„frjáls samkepni“. Aðrir hyggja hann hafa verið hlyntan
þjóðnýtingu og ríkisverslun o. s. frv.