Samvinnan - 01.09.1927, Blaðsíða 77
SAMVINNAN
251
fylgis. Það er líka auðséð að svo g-etur farið að stjórn-
málaflokkur, sem er mjög fjölmennur í landinu fái nálega
engin þingsæti við kjördæmakosningar. En hlutfalls-
kosningar hafa líka mikla ókosti í för með sér. Fjöldi
smárra stjórnmálaflokka myndast, svo víðast er ómögu-
legt að skipa stjóm, sem hafi fastan meiri hluta að baki
sér í þinginu. Minnihluta- og samsteypustjórnir hafa
reynst illa, og í mörgum löndum er hið pólitíska líf að
komast á ringulreið, og á það ekki síst rót sína að rekja
til hlutfallskosninganna. Ennfremur er því haldið fram
að með þessu móti komist öll völdin í hendur fárra manna,
miðstjórna flokkanna og vina þein-a, en kjósendur missi
að mestu áhrif sín,' og alt samband milli þingmanns og
kjósenda slitni. Þess vegna eru nú flestar þjóðir, sem tek-
ið hafa upp hlutfallskosningar, að reyna að finna leiðir
til þess að bæta úr verstu göllum þeirra. Til dæmis að
hindra myndun nýrra flokka, og reyna að koma upp aft-
ur nánari sambandi milli kjósendanna og fulltrúa þeirra.
(Samanber kaflann um Danmörku hér að framan).
Sennilega mun það reynast hagkvæmast til lengdar,
að hafa kjördæmakosningar í einmenniskjördæmum, og
reyna að gera þau sem líkust að fólksfjölda. Síðan mætti
hafa nokkur aukaþingsæti, handa þeim flokkum, sem
fæst sæti hefðu fengið í hlutfalli við atkvæðatöluna. Um
þetta er víða mikið rætt, nú sem stendur.
Eftir því sem þingræðið hefir aukist, hefir myndun
stjórnmálaflokkana farið vaxandi og orðið skýrari. Á Eng-
landi hafa öldum saman aðeins verið tveir stjómmála-
flokkar og margir enskir stjómmálamenn halda því fram,
að þetta sé nauðsynlegt skilyrði fyrir því að þingstjóra
geti þrifist. Nú eru þrír flokkar í Englandi, en það eru
miklar líkur til að svo verði ekki lengi. Sennilega sam-
einast frjálslyndi flokkurinn og verkamenn áður en á
löngu líður. Að minsta kosti virðist svo, sem meiri hluti
verkamanna og meiri hluti frjálslyndra manna geti átt
samleið í mörgum mikilvægum málum.
í flestum öðram löndum skipuðust menn ekki í flokka