Samvinnan - 01.09.1927, Blaðsíða 61
SAMVINNAN
235
um þeirra og mælingu (sbr. kvæði Gríms Thomsens, Bát-
sandapundarinn). Var honum kunnugt frá æsku, að slíks
var engin vanþörf. Það er að öllu samanlögðu ofur-eðli-
legt, að skjótt dró til óvináttu og fjandskapar með Skúla
og kaupmönnum. Öll framkoma Skúla í þeirra garð sýn-
ir, að • hann hataði og fyrirleit stéttina og starf hennar.
öðruvísi er ómögulegt að skýra það, er hann beitir kaup-
menn meiri harðneskju en ástæða virðist hafa verið til
samkvæmt lögum. Má þar nefna sem dæmi framkomu
hans við kaupmann einn í Grindavík og vöruupptektirnar
1769, sem menn geta kynt sér, ef þeir vilja, í heimildum
frá þeim tíma. Orsökin getur eigi hafa verið önnur en sú,
að hann taldi kaupmennina blóðsugur og sníkjudýr^og
hættulega almenningsheill. 1 þessari baráttu við kaup-
mannavaldið skaut fyrst upp í huga hans hugmynd um
hluttöku þjóðarinnar sjálfrar í versluninni, sem síðar
verður tekin til athugunar.
Það var enginn hægðarleikur fyrir Skúla, að fá fram-
gengt breytingum á sjálfu verslunarfyrirkomulaginu. í
fyrsta lagi er þess að geta, að um daga Skúla var íslenska
verslunin seld á leigu voldugum erlendum verslunarfélög-
um. Var enginn leikur við þau að etja. Kaupmenn lögð-
ust auðvitað fast á móti breytingum og gerðu Skúla allan
óleik þann, er þeir máttu. Hugsunarháttur þjóðarinnar
var þó ef til vill enn verri viðureignar. Landsmenn voru
svo sem fyr var getið allsendis ófróðir um verslun og
kaupmenn gátu með góðum árangri skrökvað að þeim því,
er þeim sýndist. Fengu þeir jafnvel rægt Skúla í augum
alþýðu. Almenningur er nú einu sinni hneigður til að trúa
illu um foringja sína og velgjörðarmenn. Undirlægju-
hátturinn var orðinn svo rótgróinn, að menn létu bjóða
sér alt. Of margir samtíðannenn Skúla voru „kúgaðir
komnir í heim og kaghýddir langt fram í ætt“. Högg og
hrópyrði kaupmanna þoldu þeir með jafnaðargeði. Það
þurfti mikið til að vekja metnað þeiiTa og sjálfsvamar-
hvöt. Gramdist Skúla löngum vesalmenska landa sinna,
en var jafnframt boðinn og búinn til að rétta hluta þeirra