Samvinnan - 01.09.1927, Blaðsíða 97
S A M V I N N A N
271
og Standard Oil mynduðu samlag með sér. Þetta tóikst
ekki. Þá kom það upp úr kafinu, þegar umræður stóðu
sem hæst, að ráðstjómin hafði gert sérsamning við Shell
félagið*). Fór þá alt á ringulreið. Standard Oil brá við
og lagðist á sveif með þeim, sem enga samninga vildu
gera við verkalýðsstjórnina. Voru nú þær kröfur gerðar
til hennar, að hún setti gömlu eigenduma aftur að fram-
leiðslu, sem hún var búin að þjóðnýta. Þetta vildi stjóm-
in auðvitað ekki gera og var Genua-fundinum þai’ með
hleypt upp. Þessi krafa stórveldanna var því ósanngjarn-
ari, þegar þess er gætt, að tveim mánuðum áður hafði
í Cannes verið viðurkendur réttur allra þjóða til þjóð-
nýtingar á eignum, innan sinna vébanda. Vonin um 'varan-
legan frið hafði altaf verið lítil, en aðfarir olíufélaganna
urðu mjög til að auka ósamkomulagið.
Annar aiþjóðafundur var haldinn í árslok 1922 í
Lausanne og snerist hann að nokkru leyti um olíumálin.
Einkum var þar deilt um olíuhéruðin í Mosul, eins og oft
hefir verið gert áður. Þau héruð hafa kostað mesta fjár-
eyðslu, og mestar blóðsúthellingai’, af öllum olíulöndum í
heimi, nema ef vera skyldi að Mexieo væri þar fremri.
Meðan á styrjöldinni stóð, gerðu Bandamenn ýmsa
samninga með sér, bæði leynt og ljóst, um það hvernig
þeir skyldu skifta með sér Miðveldunum og Tyrkjaveldi,
að ófriðnum loknum. Eftir stríðslokin vildu Bretar kippa
Mosul undan Svriu. Þá urðu Frakkar svo æfir, að Bret-
ar urðu að lofa þeim 25 hundi'aðshlutum af olíunni í
Mosul, til þess að friða þá. Eftir var þá að ákveða, hver
hafa skyldi vinsluna á hendi. Hlutaféð var áður í hönd-
um Breta; nú var búið að hleypa Frökkum í spilið og
Bandaríkj amenn urðu þá ekki í rónni, fyr en Standard
Oil fékk líka sinn skerf.
*) Samningur þessi var útrunninn um síðustu áramót.
Shell félagið hafði fengið olíu hjá Rússum og selt hana með
100% álagningu. Nú eru Rússar búnir að setja upp sölufélag
í Lundúnum. F. J.