Samvinnan - 01.09.1927, Blaðsíða 33
SAMVINNAN
207
íundurinn haldinn þar. Síðan byrjaði ný hring-ferð.
Fjórði fundurinn var í Kaupmannahöfn sumarið 1912.
Eftir að Finnland varð sjálfstætt ríki, 1917, gengu finsk-
ir þingmenn í félagið og síðan eru aðalfundir þess í Hels-
ingfors fjórða hvert ár.
Nú er að víkja að hinum síðasta ársfundi noiTæna
félagsins. íslendingar gengu þá formlega í félagið, sem
fimta sjálfstæða ríkið á Norðurlöndum. Við vorum sú
Norðurlandaþjóðanna, sem af eðlilegum ástæðum komum
síðast til leiks. En hin byrjandi þátttaka Islendinga 1 slík-
um mótum er nýtt spor stigið á vegi fullkomins sjálfstæð-
is. Ef íslendingar ætlast til að þeir geti verið á ókomn-
um öldum húsbændur á sínu heimili, þá verða þeir í mjög
mörgum efnum að sýna, að þeir geti staðið öðrum þjóðum
jafnfætis um andleg og félagsleg átök.
Danir höguðu svo fundi þessum nú í sumar, að
fyrsta daginn kom stjórn félagsins saman. Næstu tvo
daga var umræðufundur í þingsal Dana, efrí deildinni, og
tvo síðustu dagana ferð um Danmörku (til Suðurjótlands)
á skipi, með jámbraut og í bifreiðum. Hver aðalfundur
félagsins er þannig í einu til fróðleiks og skemtunar. Sam-
eiginleg mál era tekin til meðferðar, og ferðast um nokk-
urn hluta þess lands, þar sem fundurinn stendur.
Dr. L. Moltesen formaður dönsku deildarinnar var
fundarstjóri, og húsbóndi á ferðalaginu. Hann er kirkju-
sögufræðingur, en hefir nú lengi setið á þingi sem fulltrúi
vinstrimanna. Var stjórn hans hin skörulegasta. Þinghús
Dana, Kristjánsborgarhöll, er mikið stórhýsi, nýbygt, og
hefir miklu verið til hússins kostað. Sennilega hefir ekk-
ert þing í Evrópu jafn rúmgóð húsakynni, miðað við
þjóðarstærð. Þingsalimir eru hinir prýðilegustu, gangar
miklir og rúmgóðir, fjölmörg herbergi fyrir nefndir og
starfsmenn þingsins, lestrarsalir og bókasöfn työ. Starfs-
menn þingsins hafa jafnvel myndarlegan sal eingöngu
fyrir fundi sína.
Hver af hinum fimm þjóðum fékk nú sérstakt her-
bergi í þinghúsinu til afnota fyrir deildarfundi. Frá stærri