Andvari

Volume

Andvari - 01.07.1962, Page 64

Andvari - 01.07.1962, Page 64
174 SIGURBJÖRN EINARSSON ANDVARl ur sagði við mig að lokinni útför. Hann sagði: llver ber eiginlega ábyrgðina á slíkum atburði sem þessum? Erum við ckki allir sekir, allir góðir borgarar þessa bæjar og lands? Hvar eru ræturnar að lánleysi þessa ungmennis? Hvar yrði stað- ar numið, ef rekja ætti þær allar? Og bver væri þá með öllu saklaus af því, sem gerðist hér? Þegar Martin NiemöIIer slapp úr fanga- búðum, þar sem hann hafði verið þrælk- aður í 8 ár vegna andstöðu sinnar gegn nazismanum, var það hans fyrsta verk að lýsa yfir því, að hann væri samábyrgur þjóð sinni um þá glæpi, sem hún hafði drýgt. Idann vildi segja þetta: Það eru ekki nokkur hrakmenni, sem bera ábyrgð á þeim hörmungum, sem yfir heiminn hafa dunið, og það er ekki nóg að útrýma þeim, vér berum allir ábyrgð, vér þurfum allir að breytast, allir sameiginlega að gera yfirbót og bæta þannig fyrir það, sem vér höfum gert. Þýzkir kirkjuleiðtogar, sem höfðu orð- ið hvað harðast úti í sviptingum fyrirfar- andi ára, tóku undir þetta. Þróun mála cftir stríðið hefði vísast orðið talsvert önn- ur, ef slíkur andlegur manndómur hefði verið almennur, ef hreinsanirnar eftir stríð hefðu ekki verið fólgnar í því einu, að sigurvegararnir sýknuðu sjálfa sig ger- samlega um leið og þeir komu grimmi- legum hefndum fram við útvalda söku- dólga, cinmitt til þess að koma þeirri blekkingu inn hjá mannkyninu, að nú væri réttlætinu fullnægt og borgið. Svo gerðist sú eftirminnilega saga næstu misserin á eftir, að samvizka heimsins var nánast blind í bili á mannlega neyð, ef hún var þýzk. Meira að segja Rauði kross- inn varð sums staðar að varast að nefna það, að hjálparstarf hans gæti náð til þýzkra barna, foreldralausra, nakinna, soltinna, eða til örkumla manna á vonar- völ þar í landi. Liðsinni við þýzk afhrök hefði gert alla starfsemi þessara líknar- samtaka tortryggilega í augum allt of rnargra. Gamla formúlan sem sé, aðeins voru það ekki aðalsbornir aríar, sem í krafti ættargæða sinna máttu leyfa sér allt gagnvart manneskjum af óæðra tagi, held- ur voru það margir réttlátir, sem létu rangláta sæta maklcgu straffi. III. Einhverjum kynni að virðast það, sem ég hef rætt hér, nokkuð fjarlægt vett- vangi. En ég hef ekki talað á þennan veg í því skyni að leiða athygli frá því, sem er nær bæjardyrum og meir í færi við oss. Það sem oss vantar er það, að vér finnum blátt áfram ekki nóg til, kennum ekki nóg í brjósti, höfum of rólega sam- vizku. Það er hin rólega samvizka, sem hleypir storknun í mannlegt blóð, hvort sem hún er róuð með beinum inngjöfum í því skyni að væða manninn til grimmd- ar, — í hugsun, ef ekki atferli, sem hefur ekki verið allsjaldgæft á vorurn tímum, — eða hitt er, sem er ennþá algengara, að svefnþorn sinnuleysis og sjálfshugðar svæfir hana. Isak Newton sagði einu sinni: Þegar ég svipast um í heiminum, sé ég stóran hlaða af hörmungum og lítinn hlaða af hamingju. Þrá mín er sú, að ég mætti á hverjum degi ná dálítilli ögn úr ógæfu- hlaðanum og bæta henni í litla hlaðann, svo að hann verði ofurlítið stærri — þótt ekki væri með öðru en að hugga lítið barn, sem hefði týnt einseyringnum sín- um, með því að gefa því annan einseyr- ing. En feginn vildi ég geta gert nokkru meira. Ég vil beina hugsun vorri í sömu átt og þessi orð miða. Vér lifum í heimi, sem ber þungar byrðar. Og það er vor heimur. Það er vort eigið líf, sem líður í þrautum hans. Bágstaddur einstaklingur, sem á vegi þínum verður, er fyrst og fremst ein-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.