Andvari

Volume

Andvari - 01.07.1962, Page 108

Andvari - 01.07.1962, Page 108
218 ÓLAFUR JÓNSSON ANDVARI þessari öld er núorðið óþreytandi að lýsa því yfir í viðtölum að hann sé orðinn leiður á skáldsögum og skáldsagnagerð; hann hyggst vinna stórvirki sín í öðru formi eftirleiðis. Hitt leikur mjög á huldu hver sé líklegastur eftirmaður hans, — sem leiðandi skáldsagnahöfund- ur með þjóðinni þó ekki verði það endi- lega í öðru eins veldi. Þeir tveir höfundar af næstu kynslóð sem efnilegastir hafa þótt og enda verið einna mikilvirkastir hafa hvorugur tekið af skarið um forustu sína þótt báðir hafi þeir margt vel gert. Olafur Jóh. Sigurðsson er að vísu á kafi í hálfloknum stórvirkjum, og má vera að þau eigi eftir að auka honum hróður; en fullkomin tök hans á íslenzku máli hafa enn ekki nægt honum til sköpunar veru- lega stórbrotinna verka. Guðmundur Daníelsson vann góðan sigur með Blind- ingsleik árið 1955 sem efldi mjög hinar fyrri vonir manna um framtíð hans, en ekki komst hann þar reyndar yfir hinn fræga lierzlumun sem löngum hefur verið milli hans og stórvirkjanna. Sögu- legar skáldsögur hans siðan sýnast mér allmjög að haki þeirri bók og öðrum beztu verkum hans. Og enginn hinna yngri höfunda virðist heldur ennþá hafa veitt fullgilda sönnun þess að hann sé maður sá sem koma skal. A það hefur stundum verið bent hversu mjókkað hefur á munum milli prósa og ljóðs í nútímabókmenntum. Ljóðagerðin verður frjálslegri, og sagnaskáldin koma að sinu leyti til móts við ljóðskáldin, temja sér skyld vinnubrögð. Tími hinn- ar raunsæju, umfangsmiklu skáldsögu er liðinn og virðist ekki koma aftur; allir helztu sagnahöfundar okkar tíma eru tilraunamenn í stíl, láta sér ekki nægja að taka upp ný viðfangsefni í fornu formi. Þessa sér raunar stað í íslenzkum nútímabókmenntum þótt í litlu sé, og athyglisvert er um leið að umtalsverðasta viðleitni hinna yngri höf- unda í sagnagerð fer gjarna fram í knöppu formi, smásögu eða stuttri skáldsögu. Jafnólíkir höfundar og Geir Kristjánsson, Indriði G. Þorsteinsson og Thor Vil- hjálmsson hera þessu allir vitni; og allir eru þeir í hópi efnilegustu höfunda okk- ar. Manni virðist trúlegt að deyfð sú sem hér hefur verið í sagnagerð sé senn á hvörfum og nýrra tíðinda von innan tíðar, enda bendir sumt í þá átt. En jafnauðsætt virðist að í slíkri þróun hljóti allt að fara saman: djörfung í verkefnavali, formtilraunir og vilji til nýrrar stílsköpunar og stöðugrar stílög- unar. Þjóðfélagsádeila hefur um sinn legið í láginni í skáldskap, og vel má vera að hún eigi ekki afturkvæmt á næstunni. En sjálfur uppreisnarviljinn er nauðsyn- legur aflvaki góðum skáldskap, vilji til uppreisnar gegn dauðri hefð, þröngum og sjónarhólslausum mannskilningi, list- leysi þeirrar bókmenntafabrikku sem gengur af tómum vana. 1 sumurn verkum hinna yngri höfunda virðist mér mega marka þennan uppreisnarhug, sjálfan listviljann sem stýrir endurnýjun allra bókmennta. Idér á eftir verður rætt um nokkrar helztu bækur, skáldsögur og smásögur, sem út komu árið 1961. Ekki verður gert neitt heildaryfirlit um sagnagerðina á árinu, enda kleppsverk, en það er hyggja mín að flest þau verk þar sem gætir alvar- legrar listrænnar viðleitni komi hér til umræðu. 2 Tveir höfundar af eldri kynslóð gáfu út ný verk á ármu, Jakob Thorarensen og Guðmundur Gíslason Idagalín. Staða Jakobs Thorarensens í bókmennt um okkar er alkunn, enda hefur henni oft verið lýst: hann er með öllu mótaður af skáldskaparstefnu fyrri tíðar sem raun-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.