Andvari

Árgangur

Andvari - 01.07.1962, Síða 119

Andvari - 01.07.1962, Síða 119
ANDVARI ÍSLENZK SAGNAGERÐ 1961 229 en honum er ekki lagið að virkja þennan kærleik til listrænna átaka, mannlýsingar hans eru flestar yfirborðslegar og ekki sannfærandi og væmni jafnan á næsta leiti. Þessa gætir þó mest í rómantískum, ljóðrænum smásögum Sigurjóns sumum, sem margar hverjar fara alveg úr böndum af þessurn og öðrum lausatökum þótt söguefnið sé stundum allgott. (Dísin úr björgunum, Gamalt lag, Maðurinn í speglinum.) Sjálfur frásagnarhátturinn er ekki alltaf ósnotur, þó hann sé tilbreyt- jngarlítill, einkum þar sem höfundur kann sér hóf, en nokkuð spillir með köfl- um ásókn hans að nota sérleg og óvenju- Icg orð og orðatiltæki sem engan veg- inn falla að stílnum að öðru leyti. Bezt- ur virðist mér Sigurjón í sumum sög- um þar sem hann ratar á hnyttilegt söguefni (Vala, vala spákona) og tekst honum þá stundum allvel upp, getur verið notalega glettinn og sagt einfalda sögu skemmtilega. Hitt er verra að hrein tilviljun virðist ráða nær honum tekst og nær ekki: oft missir hann úr höndum sér jafngóð eða betri cfni og honum tekst öðrurn stundum að gera allgóð skil (I Ilöðukálfur, Hefndin). Spillir þetta mjög heildarsvip bókarinnar, og víkur hér enn að því sem fyrr var sagt: að meira þarf en góðan ásetning til að skapa um- talsverðar bókmenntir. 6 Það sem frá upphafi hefur verið at- hyglisverðast og loflegast um rit Thors Vilhjálmssonar er þrotlaus stílviðleitni hans og stílögun; hann er sá ungra höf- unda sem hefur leitað einna djarflegastra leiða í sagnagerð á undanförnum árum, og hann hefur um leið tamið sér nútíma- legan og í senn persónulegan stílsmáta sem hann hefur núorðið mjög á valdi sínu. Sumir kunna að segja að ferskleik- inn, hin nakta skynjun, sem mjög ein- kcnndi fyrstu þætti Thors hafi að ein- hverju leyti glatazt í þessari þróun, en það held ég sé hæpin kenning: hann hefur stöðugt verið að ná ríkari tökum á viðfangsefnum sínum, efla sér tamd- ari, þjálli stíl; og í beztu þáttum sínum nýtur hann þessara kosta ásamt sama næmleika og fyrrum. Samfara þessu hef- ur mannskilningur hans að sjálfsögðu tekið mótun og þróun, orðið ríkari og fjölbrcytilegri, eindregin bölsýni fyrstu þáttanna vikið fyrir raunhæfara og sveigj- anlegra viðhorfi. Allt þetta birtist vel af síðustu bók hans skáldskaparkyns, Andlit í spegli dropans, frá 1957, og þar eru beztu þættir lians til þessa. Síðan hafa rit Thors verið af öðrum toga spunnin, nær blaðamennsku. Hann gerði hressilega og skemmtilega frásögn af Rússlandsför í bókarformi, og síðan gaf hann út í bók safn greina um ýmis efni, Regn á rykið, sem flestallar höfðu birzt áður í blöðum og tímaritum. Þar í var allmikill bálkur ferðagreina frá ýmsum löndum, og raunar sagði allt meginefni bókarinnar af kynnum hans af framandi löndum og fólki. Af sama toga er nýtt verk Thors frá í haust, Svipir dagsins, og nótt, og er þar þó í senn leitað á nýja slóð. Mér telst svo til í fljótu bragði að í bókinni sé sagt frá heimsóknum hans til sjö Evrópulanda og ferðaflækingi milli þeirra; sjálfsagt má á sama hátt telja þær borgir sem meira eða minna er sagt frá í bókinni. Þessi reikningslist er hér aðeins nefnd til þess að ljóst megi verða hversu hégómleg hún er og fjarri því að segja eitt eða ncitt um verkið. Þótt ferðalög höfundar séu uppistaða bókarinnar er hún engin „ferðasaga" í venjulegum skilningi. Sönnu nær sýnist mér að höf- undur reyni að draga til einnar listrænnar heildar kynni sín af Evrópu nokkur síð- ustu ár, safna ferðaáhrifum sínum í einn skáldlegan brennipunkt. Kannski er rétt-
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132

x

Andvari

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.