Andvari - 01.01.1971, Page 28
26
BERGSTEINN JÓNSSON
ANDVARI
„Ut af þessu máli, svo og væntanlegri stjórnarlcosningu, tóku til máls: Pálmi
Hannesson, Héðinn Valdimarsson, Jónas Jónsson, Gísli Sveinsson (hann lýsti
yfir samstöðu nefndarinnar og flutn.manna áður framkominna tillagna, að ef
nefndartillagan yrði samþykkt, þá væru hinar tillögumar þar með úr sögunni);
Pétur Halldórsson. Ýmsir þessara ræðumanna töluðu oftar en einu sinni. Pálmi
Hannesson gaf þá yfirlýsingu að gefnu tilefni, að hann tæki ekki á móti endur-
kjöri sem forseti Þjóðvinafélagsins.
Þá var borin upp tillaga nefndarinnar, og var hún samþykkt með 29 atkv.
3U
• •••
Nýi forsetinn, Jónas Jónsson, hélt stjórnarfund 9. jan. 1940 í „húsnæði
Menntamálaráðs í Búnaðarbankanum". I stjórn Menntamálaráðs áttu um þessar
mundir sæti þrír af stjórnannönnum Þjóðvinafélagsins: Jónas, Barði og dr.
Guðmundur; en þar að auki Pálmi rektor og Árni Pálsson prófessor.
Samvinnu þessara stofnana, aðdraganda hennar og hugmyndunum að baki
er trúlega bezt lýst í ritgerð Jónasar Jónssonar, Hin nýja bókaútgáfa, sem
birtist í Andvara, LXV. árg., bls. 37—54.
Á tíðum stjómarfundum framan af ári 1940 var útbreiðsluherferðin mjög
á dagskrá, en hún stóð þá sem hæst. Þá þegar virðist hafa komið til tals að
breyta fyrirkomulagi og broti Andvara og Almanaks, þó að enn liði á löngu,
áður en úr slíku yrði.
Eftir fjörkippinn fyrri hluta árs 1940 er sem nokkur deyfð hafi færzt í
stjórn félagsins. Er t. d. ekkert fært í félagsbókina frá 13. júlí 1940 til 31.
okt. 1941. Má geta sér þess til, að Menntamálaráð hafi þau misseri verið
fjörugri starfsvettvangur forystumannanna.
Fyrsta ár hinnar sameiginlegu útgerðar var hlutur Þjóðvinafélagsins í föstu
árbókunum (þ. e. þeim, sem áskrifendur fengu óbundnar fyrir árgjaldið, 10
kr.) auk Almanaksins og Andvara, fyrri hlutinn af U'ppreisninni í eyðimörkinni
eftir T. E. Lawrence í þýðingu Boga Olafssonar.
Það bar til tíðinda á stjórnarfundi 22. júní 1944, að þrír viðstaddir stjórnar-
menn, Bogi Ólafsson, Ilalldór Kiljan Laxness og Þorkell Jóhannesson, sam-
þykktu, „að Þjóðvinafélagið ásamt Máli og menningu skyldi senda frú Rósu,
dóttur Stephans G. Stephanssonar, tvö þúsund Kanadadollara í þakkar- og
virðingarskyni við minningu foreldra hennar, en útgáfufélög þessi hafa bæði
gefið út bækur eftir Stephan G. Stephansson. Svo er til ætlazt, að upphæð
þessi skiptist þannig á milli félaganna, að Þjóðvinafélagið greiði tvo þriðjunga,