Andvari - 01.01.1971, Blaðsíða 36
34
BERGSTEINN JÓNSSON
ANDVAM
Um leið og vér beinum þessu erindi til Menntamálaráðuneytisins, leyfum
vér oss að vænta þess — og mælum þar jafnt fyrir munn formanns Mennta-
málaráðs og framkvæmdastjóra Bókaútgáfunnar —, að tillög þessi komi sem
viðbót við heildarfjárveitingu til Bókaútgáfu Menningarsjóðs og Þjóðvinafélags-
ins, þ. e. að hlutur Menntamálaráðs verði ekki rýrður fyrir vikið. ... “
Á stjórnarfundi 18. marz 1969 skýrir forseti svo frá því, „að samið hefði
verið við Litlioprent um ljósprentun I. og II. bindis Bréfa og ritgerða Stephans
G. Stephanssonar, eins og um hefði verið talað.“
Enn er eitt útgáfuáform lélagsins kynnt í bréfi til Menntamálaráðuneytis-
ins 13. júní 1969: „... að láta þýða og gefa út, e. t. v. nokkuð stytt, rit eftir
enskan prófessor, C. E. M. Hansel: ESP, A Scientific Evaluation, London
1966. Ritið fjallar um yfirskilvitlega skynjun (Extrasensory perception, sbr.
titilinn ESP), og leggur höfundur vísindalegt mat á rannsóknir og tilraunir,
er að þessu fyrirbrigði lúta.
Samkvæmt niðurstöðum hans fær fátt staðizt af því, sem mönnum hefur
lengi verið gjamt að trúa í þessum efnum.
Stjórn Þjóðvinafélagsins telur, að rit þetta eigi vissulega erindi til íslend-
inga, er hugsa flestum þjóðum meira um þessi mál. ..
Á stjórnarfundi 6. des. 1969 lagði forseti fram nýútkomnar bækur fé-
lagsins: Land og þjóð eftir Guðmund Finnbogason, nýja útgáfu með eftinnála
drs. Sigurðar Þórarinssonar, og ljósprentað 1. og 2. bindi Bréfa og ritgerða
Stephans G. Stephanssonar, auk Almanaks og Andvara.
Á sama fundi lagði forseti til, „að hafinn yrði sem fyrst undirbúningur að
því að minnast 100 ára afmælis Þjóðvinafélagsins árið 1971 og þá einkum með
hátíðarútgáfu Andvara, sem það ár yrði á vegum Þjóðvinafélagsins eins að
fengnu samþykki Menntamálaráðs til þess.“
Laugardaginn 5. des. 1970 var stjórnarfundur haldinn í Landshöfðingja-
húsinu við Skálholtsstíg, og þar lagði forseti fram félagsbækurnar 1970:
Almanak, Andvara og gjafabókina Frá einu ári eftir Stephan G. Stephansson.
Þarna var m. a. rætt „um útgáfu frímerkis í tilefni 100 ára afmælis Þjóð-
vinafélagsins, en póstmálastjórn hefur nýlega tilkynnt stjórn félagsins, að
útgáfa slíks frímerkis sé ráðin, og óskaði tillagna hennar í því máli.“ Stjórnin
ritaði póstmálastjórninni um málið, auk þess sem þeir forseti félagsins og Þor-
steinn Sæmundsson ræddu við hana um það. Póstmálastjóm ákvað að lokum
að gefa út tvö frímerki í tilefni af aldarafmæli Þjóðvinafélagsins, annað með
mynd Tryggva Gunnarssonar, hitt með merki félagsins.
Enn er í sömu fundargerð smáklausa, sem vísar fram á við, — félagið hefur