Andvari - 01.01.1971, Page 157
ANDVARI
SEX KVÆÐI UM JÓN SIGURÐSSON
155
Og þökk fyrir tuttugu’ og þriggja’ ára stríð.
Af þcr verður hróðugust öldin.
Við það urðu óðulin okkar svo fríð,
er ofbeldið missti þar gjöldin;
og þó að það eigni sér feðranna Frón,
í friðaðri jörð verða beinin þín, Jón,
svo lengi sem landið á skjöldinn.
Þorsteinn Erlingsson.
Flís ur vörðu Jóns Sigurðssonar
Okkar gæfumesta mann
metum við nú hann, sem vann
þjóð, sem átti ekkert vald,
ádrátt launa, tign né gjald.
Sögu hennar, lög og lönd,
leitaði uppi í trölla hönd.
Tók frá borði æðstan auð:
ástir hennar, fyrir brauð.
Honum juku þrautir þrek,
þrekið, sem að aldrei vék.
Hans það var að voga hratt,
vita rétt og kenna satt.
Mildar Jón vorn Sigurðsson
sérhver fullnægð þjóðar von.
Hann, svo stakur, sterkur, hár,
stækkar við hver hundrað ár.
Dýran hjör og hreinan skjöld
hér er að vinna á hverri öld
hans, sem aldrei undan vék
eða tveimur skjöldum lék.