Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1981, Page 110

Andvari - 01.01.1981, Page 110
108 ÞÓRÐUR KRISTLEIFSSON ANDVARI 31. maí. - 22. maí 1888: Steinn Jónsson 36 ára, ógiftur húsmaður á Bakka. Greftraður 12. júlí. - 22. maí 1888: Ófeigur Guðmundsson 31 árs, giftur tómt- húsmaður á Bakka. Greftraður 18. júlí. Gjörð er grein fyrir andláti þessara þriggja manna þannig: „Drukknudu á heimleið úr fiskiróðri fyrir austan Akurey. - Jón rak upp sama dag. - Steinn fannst á floti í sjó 8. júlí og Ófeigur s'ómuleiðis 11. júlí“ [1888]. Sigurborg Eggertsdóttir (f. 9. júlí 1891, nú þegar þetta er ritað (1978) vist- maður á Hrafnistu í Reykjavík) hefur frætt mig á því, að nóttina fyrir sjóslysið hafi Sigurður í annarlegri leiðslu séð atburð þennan alveg á sama hátt og hann bar að í raunveruleikanum næsta dag. Er Sigurður kom til sjálfs sín úr þessu ómegni, var hann svo torkennilegur og dasaður, að Auðbjörg kona hans hugði, að hann hefði veikzt skyndilega. Sagði hann þá konu sinni, hvað fyrir hann hefði borið í þessum fjarhrifum, og var viss um, að það væri fyrirboði. Frá ógæfudeginum mikla (22. maí 1888) var Sigurði Eiríkssyni fyrirmunað að sjá sér og sínum farborða. Hér hafði verið kveðinn upp sá örlagadómur, sem eigi varð áfrýjað. Ekki stoðaði að láta hugfallast, þótt svalan blési á móti og ískyggilegt þykkni legðist yfir veginn framundan. Og Sigurður stóð ekki heldur einn og óstuddur. Kona hans, Auðbjörg Jónsdóttir, lét sízt hug- faliast, þótt holskeflan dyndi yfir. Á þessu skeiði lá ekki leið manna inn í neina tryggingastofnun til að vitja um örorkubætur mánaðarlega. í slíkum til- vikum sem þessum hvíldi það í meginatriðum á eiginkonunni að finna leið út úr ógöngunum. Uppi í Borgarhrepp átti Sigurður virktavin, Jón hreppstjóra Guðmundsson, bónda að Valbjarnarvöllum. Hjá þessum trygglynda og mæta manni dvaldist Auðbjörg með börnin þeirra tvö, Ragnheiði og Bjarna, um sláttinn. Varla er að efa það, að einstakir aðilar í Reykjavík hafi greitt götu hjónanna, eftir að þessi bágindi sóttu þau heim. Að vetrinum til tók Sigurður að kenna börnum heima hjá sér lestur og skrift; þessi kennsla mun þó eigi hafa gefið mikið í aðra hönd. En þessi um- gengni hans við börnin hefur verið afþreying mikil og veitt honum margar ánægjustundir, því að kennslu fylgir, ef rétt er á haldið, gróandi og vorleg birta. - Og börn hafa hlvja samúð án vorkunnsemi með þeim, sem örlögin hafa leikið illa. Þá rauf og ekki skáldgáfan tryggðir við Sigurð, þótt líkaminn yrði lémagna að kalla. Ljóðadísin sveif með hann mörgum stundum langt burt frá raun- veruleikanum, örbirgð og hörmulega hrumum líkama; og svo stytti hann sér stundir á þann hátt, að beita pennanum, skrá ljóðin nosturssamlega með sinni sviphreinu og ágætu rithönd. Hér verður nú greint nokkuð frá afkomendum Sigurðar og Auðbjargar. Margir eru þeir, sem kannast við heiðurs- og sómamanninn Kristin Guðlaugsson
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.