Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1981, Page 130

Andvari - 01.01.1981, Page 130
128 HOLGER KJÆR ANDVARI sér útaf í rúmið til að hvíla sig, sagði gömul kona á Akureyri. Hún er alin upp á mannmörgu prestssetri á Austur- landi og lýsir því, hvernig vinnukonurn- ar drógu vota skó og sokka af vinnu- mönnunum og færðu þeim þurr plögg til að fara í. Sá undarlegi siður tíðkaðist í sveitum, að hver vinnumaður hafði sér- staka þjónustu, sem annaðist hann: saumaði fötin hans, stoppaði í sokkana, gerði honum skó og stjanaði við hann á alla lund. Oftast fór vel á með vinnu- manni og þjónustunni hans, og sam- band þeirra endaði oft með hjónabandi. Karlmennirnir fengu sér sem sagt lúr, og kvenfólkið, sem hafði verið á þönum í búri og eldhúsi eða setið við rokkinn eða prjónað, það lagði sig nú líka í um það bil klukkustund. En börnin langaði ekkert til að fara að sofa. Ef veður var gott, máttu þau hlaupa út og leika sér, en annars voru þau kyrr í baðstofunni. Stundum sátu þau út af fyrir sig og stungu saman nefjum í ein- hverjum króknum, en ekkert þótti þeim eins gaman og að láta segja sér sögur. Margar vinnukonur sögðu vel frá, og karlarnir kunnu líka þá list, en engir sögðu jafn skemmtileg ævintýri og gömlu konurnar á bænum. Börnin söfn- uðust við rúmið hjá einhverri þeirra ellegar skriðu upp í til hennar, sum sátu á skemlum við rúmstokkinn. Yngsta barnið sat oft í kjöltu hennar. Hún kunni Grimms ævintýrin, sem við þekkjum líka, söguna um Mjallhvít og um höllina fyrir austan sól og vestan mána og margar fleiri. En hún kunni líka íslenzk ævintýri um yfirnáttúrlegar verur og ófreskjur, um álfa og huldu- fólk, tröll og risa, fylgjur og drauga. Börnin gleyptu í sig hvert orð og trúðu gjarnan því sem hún sagði. Margir foreldrar voru mótfallnir því, að börnunum væru sagðar draugasögur eða gömul hindurvitni, en erfitt var að sneiða hjá slíku, því að margar sagnir voru bundnar stöðum og örnefnum í sveitinni, sem börnin þekktu. Það kom ekki að sök, ef börnin voru ekkert hrædd, en sumar sögurnar voru óhugn- anlegar og undarlegar og æstu ímynd- unarafl þeirra. Ein var á þá leið, að prestur nokkur í Hornafirði hefði orðið börnum sínum að bana og grafið þau á stöðum, sem allir könnuðust við; og á dimmum kvöldum, þegar stormurinn hvein, mátti heyra litlu vesalingana gráta hin óblíðu örlög sín. Svona sögur létu ekki vel í eyrum saklausra barna. Kennari fyrir norðan lýsti því, að úr baðstofunni á bernskuheimili hans hafi legið löng og dimm göng fram á hlaðið, en svört dyragætt úr gluggalausri hlöðu sneri út í göngin, og drengurinn flýtti sér alltaf lafhræddur framhjá þessum stað af ótta við draugana í hlöðunni. Hann dreymdi líka um þá á nóttunni: poki, sem hann vissi um, hafði fengið andlit og færðist í áttina til hans. Með- an hann var smástrákur og hafði aldrei komið út fyrir túngarðinn, hélt hann, að tröll byggju í hrauni, sem hann sá að heiman frá sér. Það var hellir í hraun- inu, sem var ekki manngengur, en ein- mitt í þessu svarta gati áttu tröllin heima. Hann hafði líka heyrt, að stund- urn kæmu þau og gægðust niður um strompinn á eldaskálanum og töluðu við eldabuskuna. Slíkar sögur hlutu að hafa mikil áhrif á unglinga, ekki sízt þegar sögumaður trúði þeim sjálfur eins og oft átti sér stað áður fyrr, einkum í Skaftafellssýsl- um. A gömlum bæ í Hornafirði bjó aldraður maður fyrir um það bil tuttugu árum, sem trúði statt og stöðugt á þjóð- sögurnar, sem hann sagði krökkunum. Menn sáu hann jafnvel skirpa á eftir draugunum. Krakkarnir höfðu beyg af sögunum hans, en þær voru svo spenn- andi, að þeir vildu láta hann segja frá,
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.