Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1981, Page 132

Andvari - 01.01.1981, Page 132
130 HOLGER KJÆR ANDVARI austan úr Öræfum segir, að pabbi sinn hafi oft sungið með krökkunum, þegar veðrið var svo leiðinlegt, að þau gátu ekki farið út. Þá voru sungin alls kon- ar lög og sálmar, ef lögin við þá voru falleg. Gömul kona á heimilinu tók undir með þeim og söng svo þýtt og blítt, að það var sem hún væri að biðja fyrir sínum eigin börnum. Stundum skemmti unga fólkið sér við að fara með vísur og kepptist þá við að kunna sem flestar. Vinsæll leikur var að kveðast á. Þá átti sá fyrsti að hafa yfir stöku og sá næsti að koma með aðra, sem byrjaði á bókstafnum, sem fyrsta vísan endaði á, og þannig koll af kolli. Væru þátttakendur þrír, byrjaði sá fyrsti: Kovidu nú að kvedast á, karl minn, ef þú getur} láttu ganga Ijóðaskrá Ijóst t allan vetur. Síðasti stafurinn er „r“, og næsta vísa á því að hefjast á honum. Sá næsti svar- ar því: Rymur hátt við róminn þinn rjáfur nætur-sala. Hér er myrkur, hani minn, hvað ert þú að gala? Síðasti stafurinn er „a“, svo að þriðji þátttakandinn verður því að koma með a-vísu: Allt fram streymir endalaust, ár og dagar líða, mí er komið hrímkalt haust, horfin sumars hliða. Nú er röðin komin að hinum fyrsta aftur að finna a-vísu: Afi minn fór á honum Rauð eitthvað suður á hæi að sækja hæði sykur og hrauð, sitt af hvoru tæi. Þá á sá næsti í röðinni að finna i-vísu, og þannig hélt leikurinn áfram. Flestar stökurnar byrjuðu á erri, vegna þess hve margar enda á þeim staf, en vitan- lega reið á að gera andstæðingnum sem erfiðast fyrir. Ekkert stoðaði að kunna vísur, sem byrjuðu á h eða þ, því að engar vísur enda á þessum bókstöfum á íslenzku. Ef endað var á ð, var ómögu- legt að svara, því að engin vísa hefst á ð, og þess vegna var bannað að nota þær. Hins vegar var mjög vinsælt að negla niður keppinautinn með x-vísu og nauðsynlegt að kunna nóg af þeim, þeg- ar keppnin harðnaði. Ef einhver rak í vörðurnar, gat and- stæðingurinn „kveðið hann í kútinn“ með því að hafa yfir þrjár vísur í röö, sem byrjuðu á bókstafnum, sem beðið var urn. Sigurvegari varð auðvitað sá, sem kunni flestar vísurnar, en oft leið á löngu áður en einhver þátttakandinn varð að láta í minni pokann. Stundum tók fullorðna fólkið þátt í leiknum. Prestur nokkur segir frá tveimur kon- um, sem voru sérlega sleipar í þessari íþrótt og voru vanar að ganga með sig- ur af hólmi. „Eitt sinn ákváðu þær að reyna með sér og byrjuðu að kveðast á klukkan tólf á hádegi. Þær héldu áfram allan þann dag, og daginn eftir hófst keppnin aftur á hádegi. Þær kváðust á til mið- nættis án þess að reka hvor aðra á stampinn og sömdu þá frið.“ A þennan hátt lærðu unglingarnir sand af vísum og kvæðum, og eyrað vandist hinni sérstæðu, íslenzku kveð- andi, sem hefur stuðla og endarím. Hag- mælska íslendinga, sem einkum var algeng áður fyrr, á eflaust rót sína að rekja til þess, að skáldgyðjan var dag- legur gestur á heimilum þeirra allt frá barnæsku.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.