Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1981, Page 139

Andvari - 01.01.1981, Page 139
ANDVARI ÍSLENZK LÝÐMENNTUN Á 19. ÖLD 137 fært að skapa formfestu án þess að hún sé bundin við lög og tilskipun. Við van- metum mikilvægi siðvenjunnar, sem hjálpaði einstaklingnum áður fyrr til þess að semja sig að háttum samfélags- ins og hljóta þannig hlutdeild í lífi þess. Islenzka kvöldvakan sýnir, hvernig and- legt líf einnar þjóðar ryður sér farveg í krafti gamallar hefðar, með lestri ævin- týra, fornsagna og guðsorðs í baðstofu- rökkrinu, hefðar, sem varð jafnföst í sessi og útbreidd og væri hún leidd í lög. Hér rekumst við á gamla norræna hefð, sem varð þó hvergi á Norðurlönd- um jafnháþróuð og á íslandi. Húslestr- ar hafa víða verið hafðir um hönd á Norðurlöndum, og menn lásu upphátt vetrarkvöldin löng á norrænum sveita- heimilum. í „E. Bindstouw“ hjá Blicher er bókmenntalegur vitnisburður um vísnakveðskap og sagnalestur, og með lýsingunni á Borrevad Molie í „Frem- skridt“ bregður Ja'kob Knudsen upp mynd af kvöldvöku, sem minnir á Ísland. í Borrevad Molle lesa menn skáldsögur Ingemanns, Saxo, Snorra, Knýtlingu og fleiri íslenzkar sögur, og sagnfræðirit Ludv. Chr. Mullers og A. D. Jorgensens. Þaðan liggja þræðir aftur í fornnorræna hefð eða fram á við frá Grundtvig. Gamla íslenzka heimilið var ekki að- eins efnahagsleg og félagsleg heild, held- ur og menningarsamfélag. Kvöldvakan var lýðháskóli, sem féll með furðulegum hætti inn í hversdagslíf og störf heim- ilanna. Á kvöldvökunni var miðlað þekkingu á sagnfræði og skáldskap eins og í norræna háskólanum hans Grundt- vigs, og háskóli íslenzku sveitaheimil- anna átti sammerkt með honum í því að lyfta venjulegu fólki upp úr einangrun daglegs lífs og gera það þátttakendur í lífi liðinna kynslóða. IV Störf og leikir Oft standa íslenzkir sveitabæir undir fjallshlíð og snúa stöfnum fram til dals- ins, og þannig var það líka í gamla daga. Lágreistir moldarkofar kúrðu auðmjúkir í skjóli fjallsins, sem gnæfði tignarlegt fyrir ofan og minnti stundum á stóra, gotneska kirkjurúst. Fram undan bæn- um lá túnið, grænna en gróðurinn um- hverfis vegna mykjunnar, sem á það var borin. Lengra í burtu voru óræktarmóar, mýrar, engi og auðnir. I slíku umhverfi ólust börnin upp. Þau byrjuðu snemma að taka þátt í störfum á heimilinu, þar sem einföld verkaskipting réð og hver hafði sitt á- kveðna verk að vinna. Fyrstu leikir barn- anna endurspegluðu þetta starfslíf og voru eins konar undirbúningur að því hlutverki, sem beið þeirra. Krakkar sem alast upp í sveit hafa leikið sér að bú- smala úr kindahornum og kjálkum, og þannig leika þau sér enn þann dag í dag. Frá ferð minni um landið minnist ég m. a. fjögurra ára drengs, sem átti stór- an kassa fullan af hornum og beinum. Hann kunni skil á þeim öllum og sýndi mér, hvað hvert bein átti að tákna. Sauðarleggur var hestur og kýrbein var kýr, stórt kindarhorn var kind og lítið horn var lamb og hrútshorn var náttúr- lega hrútur. Faðir hans átti líka geitur, og neðri kjálkinn úr sauðkind var sem sé geit og neðri kjálkinn úr lambi kiðl- ingur. Strákur var mjög stoltur af safn- inu sínu! Faðir hans, sem var gildur bóndi, varð að játa, að hann ætti ekki
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.