Andvari

Årgang

Andvari - 01.01.1981, Side 158

Andvari - 01.01.1981, Side 158
156 FRÁ KOMU KAÞÓLSKU NUNNANNA TIL ÍSLANDS 1896 ANDVARI öðrum um borð. Veður var fagurt og kyrrt, svo sem bezt verður á kosið. En smám saman gerði úðaregn líkt og himnarnir skynjuðu þær tilfinningar, sem bærðust í allra brjóstum. Eftir tuttugu mínútna róður vorum við komin að grafreitnum, sem er undir háu fjalli. Jarðvegur þar er þunnur og örgrunnt ofan á naktar klappirnar. Presturinn flutti prédikun, vígði gröfina og bað fyrir hinum framliðna. Þvínæst var mold og mulningi mokað yfir kistuna og gröfin að lokum þakin grassverði. Þetta var fyrsti franski sjómaðurinn, sem naut góðs af hjúkrun systranna og prestsþjónustu á Fáskrúðsfirði. Fyrstu árin okkar í Reykjavík nutum við styrks frá Frakklandi, en árið 1902 lét franska stjórnin reisa spítala í öðrum hluta bæjarins. Síðan hafa engir Frakkar legið í sjúkraskýlinu hjá okkur. Það var fögur sjón að sjá hvítmáluð fiskiskipin liggja á höfninni. Dag einn sáum við mjög stórt gufuskip sigla inn flóann. Á stórsiglu blakti þríliti fáninn franski við hún. Þetta var ,,La Manche“, sem kemur á hverju ári hingað til Islands til þess að líta eftir frönsku fiskiskipunum og veita þeim aðstoð. Naumast hafði „La Manche“ varpað akkerum áður en skipherrann kom á fund séra Osterhammels til þess að biðja hann um að lesa messu um borð í skipinu. Jafnframt var móður okkar, príórinnunni, og mér boðið að koma um borð með prestinum til þess að annast allan undirbúning fyrir messugerðina. Slík guðsþjónusta um borð í frönsku herskipi er unaðsleg og viðburður, sem gleym- ist seint. Sjóliðarnir reru okkur um borð í litlum, en afar snotrum skipsbát. Skipherrann heilsaði okkur alúðlega og fylgdi okkur niður á miðþiljur, sem breytt hafði verið í skínandi fallega kapellu, svo að ekki varð á betra kosið. Innst á þilfarinu var kórinn vafinn fánum og skreyttur vopnum og rósaflúri. Altarinu var komið fyrir á teppalögðum lestarhlerum og var svo hátt, að það sást alls staðar að af þiljunum. Hlerarnir fyrir ofan altarið voru fjarlægðir og lestaropið þakið gulu klæði, þannig að allur kórinn og altarið voru lauguð gullnum bjarma. Áður en messan hófst var franski þjóðfáninn tekinn ofan og guðsþjónustuflaggið, þríhyrningur hvítur að lit með rauðum krossi, dregið að hún í staðinn. Við náðum í messuklæðin, ferðaaltarið og annan nauðsynlegan útbúnað, sem við höfðum með okkur, og eftir skamma stund var allt tilbúið. Skipverjar á herskipinu voru 125 að tölu. Meðan presturinn skrýddist messu- skrúðanum, gengu sjóliðarnir inn. Allt í einu kveður við skipun: „Standið rétt.“ Byssuskeftin dynja á þilfarinu, því að nú koma skipherrann og liðsfor- ingjar hans. Áður var hann búinn að fara um borð í hvert einasta fiskiskip til þess að bjóða til helgra tíða. Honum var það metnaðarmál, að allir skipstjórar og meginhluti skipshafnanna væri viðstaddur athöfnina. Nú hefst messan. Okkur móður Ephrem og mér var vísað til sætis á hægri hönd við skipherr- ann. Að lokinni þrepbæn eru lúðrar þeyttir. Við umbreytinguna1 kveða við 1. Umbreyting eða transubstantiatio, eins og það heitir á kirkjunnar máli, þýðir samkvæmt kaþólskri kenningu breyting brauðs og víns í altarissakramentinu í líkama og blóð Frelsarans Jesú Krists. Þetta er eitt af þeim meginatriðum, sem aðskilja kaþólska og lúterska trú.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.