Andvari - 01.01.1992, Blaðsíða 40
38
GUÐMUNDUR ARNLAUGSSON
ANDVARI
Vegna þessarar greinar og annarrar þátttöku Eggerts í pólitísku
starfi kallaði Sigurður hann fyrir sig og tilkynnti honum, að „hann
gæti ekki fengið skólavist næsta vetur, nema því aðeins að hann léti
af pólitískri agitation með þeirn aðferðum og því sniði sem hann hef-
ir rekið upp á síðkastið“ (Fundargerðabók kennarafunda). Sigurður
mun hafa beitt svipuðum ráðum áður varðandi nemendur er trufluðu
skólalíf með óreglu sinni.
Blaðið Verkamaðurinn á Akureyri brást hart við þessu, en Sig-
urður svaraði í Degi. Hann kveðst eigi hafa rekið Eggert úr skóla,
hann sé enn velkominn í skólann, ef hann vilji hlýðnast kröfum hans
um siðferði og velsæmi í pólitískri framkomu. Og Sigurður bætir við
viðurkenningarorðum um Eggert, segir að hann sé „á margan hátt
óvenju mannvænlegur, ágætlega gefinn, kurteis, skyldurækinn og
stilltur, nema þá er hann stundum tekur þátt í sókn fyrir „kommún-
ismann“, sem er honum hjartfólgið sannfæringarmál. Þykir mér
raunalegt, að samviska mín leyfði mér eigi annað en taka fast í taurn-
ana, er svo prýðilegur námsveinn átti í hlut.“ 28
Verkamaðurinn svaraði Sigurði á þá leið, að hann og samkennarar
hans væru að taka sér vald sem þeir hafi ekki: „Þeir ætla að gerast
dómarar um siðferði og velsæmi í pólitískri framkomu og gera geð-
þótta sinn í því efni að æðsta dómstól, því reglugerð er engin til um
pólitíska framkomu pilta.“ 29
Ekki þurfti lengi að bíða reglna, því að næsta haust sendi Jónas
Jónsson dóms- og kennslumálaráðherra skólanum bréf varðandi tvö
atriði um stjórn og aga í skólurn landsins. Þar segir þetta um afskipti
nemenda af stjórnmálum:
Nemendur mega ekki hafa nokkur afskipti af stjórnmálum út á við, hvorki í
ræðu eða riti, né taka þátt í deilum um hagsmunabaráttu félaga eða stétta í
landinu, meðan þeir eru nemendur í skólunum. 30
Síðara atriðið fjallaði um neyslu áfengra drykkja og verður ekki rak-
ið hér. Þessi ákvæði stóðu franr til ársins 1945 að Brynjólfur Bjarna-
son menntamálaráðherra nam þau úr gildi.
I því maíblaði Félags ungra jafnaðarmanna á Akureyri sem fyrr er
nefnt var einnig grein eftir annan nemanda skólans, en ekkert virðist
hafa verið aðhafst vegna hennar. Þessi nemandi var Ásgeir Blöndal
Magnússon, síðar ritstjóri Orðabókar Háskólans. Ásgeir var þá
kominn í fimmta bekk, afburðamaður í íslensku, svo að þar stóðu