Andvari - 01.01.1992, Page 43
ANDVARI
SIGURÐUR GUÐMUNDSSON
41
Rétt er og að geta þess hér, að þegar dró að heimsstyrjöldinni síðari
tók Sigurður mjög eindregna afstöðu gegn yfirgangi Hitlers og alræð-
isstefnum almennt. Þar haslaði hann sér völl á hugmyndafræðilegum
grundvelli, eins og sjá má af skólaræðu hans „Kraftúð eða mann-
úð“.35
10. Nemandinn og skólinn
Þeir sem eiga einhverja skólagöngu að baki eða hafa átt börn í skól-
um munu flestir hafa komist að raun um að skólar geta verið býsna
ólíkir, jafnt að anda sem gæðum. Jafn augljóst er, að þennan mun er
afar erfitt að mæla og meta. Bandarískar kannanir benda til þess, að
ýmsir þeir þættir er mönnum detta fyrst í hug við mat á skólum og
skólastarfi skipti minna máli en ætla mætti: Fjöldi nemenda á hvern
kennara, kostnaður á hvern nemanda, magn og gæði kennslutækja,
stærð skólabókasafns, ekkert af þessu skipti sköpum. Það sem mestu
máli skipti sé hins vegar forystan, skólastjórnin, kennaraliðið og
dugnaður þess, námskröfur skólans, námsvenjur nemenda, þar með
talin heimavinna, og agi í kennslustundum. Miklu máli skipti einnig
að stjórnun að utan hamli ekki starfi skólans. Margt bendi til þess að
því minni sem miðstýring og skrifræði séu, þeim mun betri geti skól-
inn orðið.36
íslenski menntaskólinn hefur fram til þessa verið blessunarlega
laus við mikla miðstýringu. Hann hefur búið við öflugt aðhald í fjár-
málum, en annars hafa skólastjórn hans og kennarar fengið að yrkja
sína jörð að mestu óáreittir.
Flestir sem til þekkja munu telja skólastjórnarár Sigurðar mikið
gróskutímabil í sögu norðlenska skólans. Hann tók við gagnfræða-
skóla með um hundrað nemendum en skilaði af sér rúmum aldar-
fjórðungi seinna menntaskóla með hálft fjórða hundrað nemenda.
Skólinn hafði ekki einungis vaxið að nemendafjölda heldur einnig að
trausti og áliti. Það mun flestum foreldrum ærið áhyggjuefni er þeir
senda börn sín ung og óreynd í fyrsta sinn að heiman, enda erfitt að
spá um hvernig þeim muni vegna í nýju umhverfi. Við þær aðstæður
þótti mörgum gott að leita til Sigurðar og skóla hans, það sýndi hin
vaxandi aðsókn að skólanum.