Andvari - 01.01.1914, Page 30
26
Rannsókn
og þetta bæði í sjálfri dáleiðslunni og eins svo og
svo lönguin tíma eftir að liann er vaknaður.1) Þótt
tíminn, þangað til hinn dáleiddi á að framkvæma
verkið, sé talinn í hundruðum eða jafnvel þúsundum
mínútna eða sekúndna, þá framlcvæmir hann verkið,
ef honum á annað borð er það auðið, einmitt á þeirri
sekúndunni, sem honum er sagl. Sjaldnast man hinn
dáleiddi eftir skipun dávaldsins í vökunni og hj'ggur
því, að hann breyti af sjálfshvötum. En sé hann
dáleiddur á ný, man hann jafnaðarlegast eftir skip-
uninni og öllu öðru úr fyrri dáleiðslunni. Þetla
sýnir, að maður getur breytt af huldum hvötum, er
felast í hinni svonefndu undirvitund lians, sjálfum
sér ósjálfrátt og óafvitandi. Loks má teija dáleidd-
um mönnum trú um, að annarlegar persónur eða
jafnvel dánir menn tali eða riti með munni þeirra
og liendi og fara þeir þá oít að tala eða rita ósjálf-
rátt í vöku. Þessi persónuskifti koma líka stundum
fyrir i vissum sálarsjúkdómum, eins og t. d. móður-
sýki lhysterij og ílogaveiki fepilepsij.
Eftir slag geta menn t. d. vaknað gjörbreyttir
sem annarlegar persónur; muna þeir þá ekkert af
sinni fyrri ævi, en verða bókstaílega að nýjum mönn-
um, sem ef til vill fara að reka alt aðra atvinnu en
þeir áður hafa rekið. Ráfa þeir þá oft heiman i
einskonar hugvímu, setjast að á ókunnum stöðum
og fara að reka þar atvinnu. En svo hníga þeir
niður aftur einn góðan veðurdag, og eru þá orðnir
hinir sömu menn og áður; en þá muna þeir ekkert
eftir þessu millibilsástandi sínu.
Enn skýrara kemur þó þessi skifting vitundar-
1) Þetta mætti nefna s í ð h r i f (posthypnotisk suggcstion).