Andvari - 01.01.1914, Blaðsíða 155
Björn bóndi Einarsson.
151
Svansvík, en lauk hálfa í kirkjuskuld. Hann gaf
kirkjunni brík, er hann hafði út flutt, og tabúlu, er
hann hafði skipað konu sinni að kaupa í Noregi, en
ef hún kæmi eigi til kirkjunnar, skjddu erfingjar
hans aðra kaupa eða lúka verð fyrir, og enn fremur
gaf liann kirkjunni 12 stikur með bleikt léreft til
messuklæða, hökulsefni, ef hann eða kona hans
kæmi lífs aftur, koparkúlu sexhyrnda og eina kerta-
stiku með kopar. En sú kvöð fylgdi fé þessu, »að
sá, er í Vatnsfirði býr, skal syngja árlega upp á
minn ártíðardag mina sálumessu með sálutíðum og
commendationibus, og gefa fátækum mönnum liundr-
að í kosti eða vaðmálum, hvort sem nægra er tilcc1).
Hann lýsti og því, að hann væri heiti bundinn, að
sækja heim hinn heilaga Jakob poslula í Compo-
stella á Spáni eða fara pílagrímsferð þangað. Fyrst
fóru þeir til Noregs og komu þangað um haustið, en
þar andaðist Vilehin biskup öndverðan vetur, og
gerði Björn útför hans virðulega með miklum kostn-
aði í Björgvin. Þar var Áskell erkihiskup, sjö lýð-
biskupar og margt annað stórmenni. Útfararveizlan
stóð marga daga með hinum beztu föngum. Má af
þessu sjá, hvílíkur rausnarhöfðingi Björn hefir verið,
enda var góð vinátta milli hans og Vilchins bisk-
ups. Kona Bjarnar var með honum í þessari ferð,
1) Einar faðir Bjarnar gaf í »testamenti« sínu Vatns-
fjarðarkirkju jörð á Hálshúsum og í Vogum, Miðhúsum
og Eyri hálfa í Mjóafirði, livalreka í Fljóti og kaleik gylt-
an, er vóg 2 merkur. En þessi kvöð fylgdi: »skal sá mað-
ur, sem kirkjunnar góss heldur, láta gefa hér fyrir árlega
á minn árstíðardag fátækum mönnum hundrað i kosti og
láta segja sálumessu fyrir minni sáf«. Mikið fé gaf hann
ýmsum kirkjum.