Andvari - 01.01.1914, Side 73
Bréf frá Jóni biskup Wídalin.
69
tvö ár við báða stólana, og síðan taka tvo nýja, og á sama
hátt mann við aðal-prestaköllin og beztu meðal-prestaköll,
og pess vegna verður að kaupa nauðsynlegar bækur, sem
síðan verða taldar eign þeirra kirkna. Að líkindum má
ráða fram úr þessu, ef ónauðsynlegar eignir verða seldar,
er um getur í næsta atriði.
3. Að miklu leyti samhljóða 3. atriði í skjalinu, sem
dags. er á Hólum 11. septbr. 17171).
4. Sbr. 4. atriði i sama skjali.
II. Um verzlunarmál er örðugl að tala, og þess vegna
get eg ekkert fullnægjandi um það sagt, fyrr en eg tala við
aðra, sem eru betur íærir en eg í verzlunarmálefnum. Að
því er sjálfan mig snertir, þarf eg eigi að kvarta, nema
yfir þvi, hve lítt er flutt af trjávið til þessa lands, svo að
eigi er hægt að byggja ýmsar kirkjur né heldur sveitabæi.
Að öðru leyti kvarta bændurnir einkum yflr þvi, að sum-
staðar fáist ekki nauðsynjavörur, og jafnvel ekki fyrir all-
ar þær íslenzkar vörur, sem i taxtanum standa, sérstaklega
ekki gegn ullarvöru. Sömuleiðis heyrist kvörtun um, að
til séu þeir kaupmenn, sem þröngvi vörum inn á almenn-
ing á þann hátt, að þegar íbúarnir fá eina mjöltunnu, fjórð-
ung járns eða tré, þá eru þeir skuldbundnir að taka jafn-
mikið út af annari vöru, sem þeir þurfa eigi á að halda.
Loks er allt þvílíkt bannað í allra-náðugustu tilskipan, á
eftir taxtanum, sem eigi er þó jafnan eftir farið. Svo ætti
og amtmaðurinn sérstaklega að líta eftir þessu og lialda
kongsins skipun i heiðri, en eigi getur hann alstaðar verið
í þessu víðlenda amti, og því sé eg engi ráð til að koma í
veg fyrir þetta, nema þau, að sýslumönnum sé leyft að at-
huga vöruna og vernda almenning (sem eklci má sín gegn
kaupmönnunum), er þeir íá fulla vissu, og verði þar lögð
við þung refsing. En til þessa þarf og að skipa í sýslu-
mannsembætti eigi einungis einlæga og skynsama menn,
eins og lög mæla fyrir, heldur og vel efnum búna, sem
eigi þurla að lil'a á kauþmannanna náð, því að svo er um
sýslumenn, að verði þeir skuldugir, þá missa þeir málfrelsi.
1) Pvi miöur mun skjal þelta vera glatað. Pýð.