Andvari - 01.01.1914, Side 154
150
Björn bóndi Einarsson.
hefðu framið þar verzlun án konungs orlofs oghefðu
keypt krúnunnar góss móli lögum. Þá var settur
fjórtán manna dómur í Björgvin, til að dæma nm
mál þetta, og var sá dómur þeirra, »att stýromen ok
sveinar skuldo sveria fullan bokareid hvar fjrrer sig
huad naudsyn þeim till droogh att þeir komo till
gronlandz«. Þeir sóru fullan bókareið, bæði stýri-
menn og sveinar, »at þeer varo j hafue j storom
vanda ok vada ok liisfs haaska fyrer storum sioiakl-
um ok isom ok fengo storan skada a þeira skipom
er brotnado ofuan sio ok lofuado sigh til heilagra
stada. fyr en þeir fengo land j þuilike store naudsyn.
hafdo þeir ok þat j eidstaf sinom atl þeir kofto
engkte konungs gods«, og féll svo það mál niður,
er þeir voru dæmdir sýknir saka. Þeir félagar fóru
síðan um Danmörlc og Þýzkaland suður á Ítalíu til
Rómaborgar, og komu allir út aftur úr ferð þessari
í Þerneyjarsundi 1391. Þá kom og út með Birni
Þorsteinn Snorrason, er það ár var vígður í Dan-
mörku ábóti að Helgafelli af Michael Skálholtsbisk-
upi, og hafði Þorsteinn og farið til Rómaborgar.
Fjórðu utanförina fór Björn 1405, og var það
Jórsalaför hans, frægasta ferðin, sem hann fór, og
fóru þá utan með honum Vilchin biskup í Skálholli,
Snorri lögmaður Sveinsson og Jón munkur Hallfreð-
arson. En áður en Björn hóf þessa ferð, samdi
hann »testamenti« sitt og gaf þar mörgum miklar
gjafir. Hann kaus líkama sinum legstað í forkirkj-
unni í Vatnsfirði, og gaf til kirkjunnar hálfan allan
skreiðartoll í Bolungarvik og þriðjung í Drangareka
öllum og sjöttung í öllum reka í Rekavik á bak
Látrum og skógarhögg í ísafjarðarbotni, svo sem
lienni þarfnast. Hann gaf kirkjunni hálfa jörðina