Andvari - 01.01.1914, Side 115
Athugasemdir og skýringar við bréfin,
Framanprentuð bréf Baldvins Einarssonar til Bjarna
amtmanns Thorsteinssonar hefir Steingrímur rektor, sonur
amtmanns, selt Landsbókasafninu ásamt mörgum öðrum
merkum bréfum til amtmanns bæði frá íslenzkum og út-
lendum samtíðarmönnum hans. Bréf þau, er hér birtast,
eru öll með hendi Baldvins, en undir 2 af þeim — I. og X.
bréíið — heíir Borgeir Guðmundsson, síðar prestur á Lá-
landi, einnig sett nat'n sitt. Gaf hann eins og kunnugt er Ár-
mann á Alþingi út með Baldvin, en Baldvin mun hafa ráð-
ið mestu um stefnu ritsins, enda ritað langmest í það.
Bréfin eru i öllum verulegum atriðum gefin út með
stafsetningu Baldvins. XI. bréfið hefir áður verið gefið út
í Tímarili h. ísl. Bókmentafélags X., 140.—152. bls. En af
þvi að útgáfa sú er ekki aliskostar áreiðanleg, þótti rétt
að gefa það hér út á ný með hinum bréfunum. Fáeinum
allskostar ómerkum eftirskriftum við bréfm hefir verið
slept hér. Bréíin eru geymd i handritasafni Landsbóka-
safnsins nr. 339 fol.
I. bréf bls. 78°—8 boðsbréf og sýnishorn af Ármanni
á Alþingi. Sýnishornið er nokkurs konar inngangur til
Ármanns. — 79n bagga = baga. — 80s—4 Hið íslenzka lær-
dómslistafélag var stofnað í Kaupmannahöfn 1779. Pað gaf
út alþýðleg fræðirit í 15 bindum (Kh. 1781—1798). Jón kon-
ferenzráð Eiriksson var meðan honum entist aldur forseti
og aðalfrömuður félagsins.
II. bréf 8310—20 ob causas sane molestissimas, sed
tamen aliis aðhuc maxima ex parts ignotas. Sat de his.=
af mjög svo hvimleiðum ástæðum, sem eru þó enn sem
koinið er öðrum út í írá að miklu leyti ókunnar. Nóg um
það. Það er ekki alveg víst, hvað höf. á hér við. Senni-
lega benda ummæli þessi til fjárhagsörðugleika lians (sbr.
orðin síðar í bréfinu: ,en af því eg á svo örðugt uppdrátt-
ar‘). Pó má vcra að latnesku orðin sveigi að heitrofum