Andvari - 01.01.1914, Qupperneq 97
Bréf frá Baldvin Einarssyni.
93
Eg get með engu móti sýnt yðr mína þakklátsemi,
en eg skal leggja allt kapp á að gera ritið svo gagnlegt og
vel lagað fyrir islcnzkan almúga sem eg hefi vit á, og mín-
ir kraptar leyfa, fullviss um, að pað er sú pökk sem yðr
er þægilegust.
En eg er enganveginn einfær um að gera Ármann
svo sem hann ætti að vera, eg þarf til þess hjálp og að-
stoð þá, sem hér er ekki að fá, og fáir vilja láta i té við
mig, kann og vera að fáum sé unt að veita hana. Yðar
hávelborinheit vantar hvorki vit né vilja til þess, en þar á
móti mun yðr vanta tíma. En verði yðr einhverntíma
á milli verka, þá rennið huga yðar sern skjótast til okkar
Ármanns og segið okkr svo með einni línu, hvað yðr
þykir að okkr, og livað og hvernig þér viljið láta okkr
starfa. Eg er ungr og lítt ráðinn, hefi og við öðru að
snúast sem stendr, og þarf því ráða með. Annars kann
eg að fara í gönur og á afvegu, og þá er yðar góðu að-
stoð spilt og peningastyrkrinn gerðr að engu, sem ekki
má vera.
Eg ber ætíð mikla virðíngu fyrir yðar hávelborin-
heitum
og er yðar
auðmjúkr þénari.
Baldvin Einarsson.
VI.
Kaupmannah. þann 29. Apríl 1831.
Hávelborni herra.
Fyrirgefið mér, hávelborni herra! að eg rita yðr núna
miða efnislítinn og efnisillan, því að nú leita eg til full-
tíngis hjá yðr, ef þér ættuð hægt með úr að ráða.
Svo stendr á högum minum, að eg er maðr kvong-
aðr og barnsfaðir; að þetta er orðið svo er mér að kenna,
það er sjálfsagt, en eigi tjáir nú að víta mig fyrir það, því
það er orðið ofseint. Af þessu sjáið þér, að eg muni ega
örðugt uppdráttar eptir examen, þar mörgum candídat