Andvari - 01.01.1914, Side 37
dularfullra fyrirbrigða.
33
blóma aldurs síns árið 1905, og að viku liðinni virt-
ist hann vera farinn að tala af vörum Mrs. Piper og
rita með hendi liennar og síðan hefir þetta borið við
altaf öðru hvoru. En — hvort þetta er sá raunveru-
legi Hodgson sjálfur eða skapnaður og hugartóstur
Mrs. Piper sjálfrar eða annara, er hafa skotið því
inn hjá henni, — það er eftir að vita. Til þess að
ráða þá gátu, var maður sá, er í fyrstu hafði fundið
Mrs. Piper og þekt hana full tuttugu ár, og auk þess
bar allra manna bezt skyn á slíka hluti — hinn á-
gæti, ameríski sálarfræðingur William James — feng-
inn til þess í ársbyrjun 1908 að rannsaka málið.
Eftir langa og ítarlega rannsókn komst nú maður
þessi, er andatrúarmenn hafa ílaggað svo mjög með
bæði lífs og liðnum, að þeirri niðurstöðu, að hann
væri á báðum áttum (on the JenceJ, vissi ekki hverju
liann ætti að trúa. Óbrjáluð orð hans eru á þessa
leið: — »Mér sjálfum virðist eins og einhver ytri
vilji til þess að komast í samband við menn sé hér
líklegur, það er að segja, mér virðist efasamt . . . .
að draumlíf Mrs. Piper, enda þótt það hafi fjarhrifa-
gáfu til að bera, geti skýrt alt það, sem fram er
komið. En sé ég spurður um, hvort þessi vilji til þess
að lcomast í samband við menn sé vilji Hodgson’s
eða falsmynd af anda Hodgson’s (a spirit-connterfeit
of HodgsonJ, þá get ég ekki skorið úr því og bíð
frekari staðreynda, — staðreynda sem ef til vill er
ekki hægt að draga neina óyggjandi ályktun af fyr
en svona að fimmtíu til hundrað árum Iiðnumci1).
Svona talaði nú sá maður síðastra orða, sem
1) Proceedings of the S. P. R., vol XXIII, p. 121 o. s.
Tilfært eftir bók Flournoij: Spiritism and Psychology, amerísku
þýðingunni.
Andvari XXXVIII.
3