Jörð - 01.10.1941, Qupperneq 78
irnir væru aftur að þyrpast á sinn stað, og að stundirn-
ar tvær væru á enda.
„Eftir allt það, sem þér liafið heyrt?“ livislaði hún,
og beindi til lians vörum sínum og augum.
„Ég hef ekkert heyrt,“ svaraði hann.
„Nafn höfuðsmannsins var Flórmundur de Champdi-
vers,“ sagði hún i eyra lionum.
„Ég heyrði það ekki,“ svaraði hann, tók hinn mjúka
líkama liennar í fang sér og þakti tárvotl andlit lienn-
ar með kossum.
Það heyrðist liljómrænt tíst fyrir aftan þau og skemmti-
legar skríkjur, og rödd hins göfuga herra de Malétroit
hauð hinum nýja frænda sínum góðan dag.
G. J. þýddi.
Bókafjársjóðum forðað
DJUPT niðri í námu einni í Wales er ungur, ameriskur bóka-
ljósmyndari i óða önn að forða bókafjársjóðum Bretlands úr
ófriðarhætlunum. Þar eru á óhefluðum hillum bækur og hand-
rit úr British Museum, sem metin eru á tugi milljóna króna. Og
Bandarikjamaðurinn ljósmyndar þær hlað fyrir hlað á mjófilmu og
sendir hverja rollu vestur um haf, jafnóðum og lokið er. Þannig
hefir hann jjegar sent eina milljón hiaðsiða og ekki ein orðið fyrir
skakkafalli. Rollurnar eru geymdar undir handarjaðrinum á Michi-
gan-háskólanum í Ann Harbour. Eftirmyndir hafa svo verið send-
ar meira en tylft af hókasöfnum, er hafa haft tök á að láta stækka
þær til úpprunalegrar stærðar. A þenna hátt hefir verið bjargað
hverri bók i British Museum, sem prentuð liefir verið fyrir árið
1550. Enn fremur þúsundum af sjaldgæfum hókum úr öðrum brezk-
um söfnum. Fimm þúsund blaðsíður úr bókasafni Guildhall komu
vestur fáum dögum áður en ráðhúsið var rústað.
Potturinn og pannan i öllu þessu er ofangreindur Ijósmynda-
útgefandi, Eugene B. Power að nafni. Þegar ófriðarhættan nálg-
aðist, lagði hann fram áætlun um að hjarga sjaldgæfum bókum
Norðurálfunnar á þenna hátt og fékk til þess styrki, fyrst úr Car-
negie-sjóði, siðar úr Rockefeller-sjóði. Árið 1936 fór hann svo með
fullan úthúnað og aðstoðarmenn til Evrópu. Þegar ófriðurinn brauzt
út, flutti hann sig af meginlandinu og yfir til Bretlandseyja og
þar eru nú sex Ijósmyndavélar í fullum gangi á hans vegum.
380 jöbð