Jörð - 01.10.1941, Page 106
Landbrotshóla. Farið var út úr bílnum við Dalbæjarstap-
ann, í jaðri eldhraunsins; og horft til baka til að festa
landslagið í minni. Svo var lagt í hraunið á heimleið.
í Skaptártungunni var komið að Hemru til Valdimars
hreppsljóra .Tónssonar og drukkið þar kaffi. Gekk Valdi-
mar um með gestunum og sýndi þeim nánasta umhverf-
ið, sem er harla fritt. Eiginlega lieitir bærinn Lokinhemra
og þykir mér miður, að fyrri hluti nafnsins skuli nú ekki
lengur hafður með. Áfram liggur leiðin hjá Flögu og
Hrífunesi og áður en varir er Skaptártunga að baki, en
hin mikla auðn, Mýrdalssandur, fvrir framan. Þar var
byggð skömrnu eftir landnámstíð, Dynskógahuerfi og Lág-
egjarhverfi, en allt er það eytt af völdum Kötlu. Einn
bærinn hét Laufskálar. Þar var mesti fjöldi hurða á járn-
um. Þar sem bærinn stóð er auðn og sandur. Hefir þar
lengi verið áningarstaður og skyldi liver, sem þar áir í
fyrsta sinn, hlaða þar vörðu. En varða heitir það, ef þrír
steinar eru lagðir hver ofan á annan. Við Einar gerum
skyldn okkar og hlöðum tvær til þrjár „vörður“ livor,
áður en haldið er áfram. Ekki veit ég, hvernig þessi sið-
ur hefir myndazt, eða hvað liann þýðir.
Nú tekur við öldumyndað graslendi og síðan lágir
hraunhólar, eða nybbur, sem jarðvegur hefir flettst af.
Það eru þessir hólar, sem hafa skýlt Álftaverinu fyrir
Kötluhlaupum. Við þá liefir jakahrönnin stöðvazt og
vatnsflóðið dreifzt austur. Svo liillir undir fyrsta bæinn
í „Verinu“, Slcáilmarbæ. Brátt er farið um lilaðið á Herj-
ólfsstöðum. Alls konar reköld af sjó minna á, að nú er
komið að jörðum, sem eiga rekafjöru. Um sexlevtið er
komið að „ldaustrinu“. Þau hjón, Sveinn og Hildur, bjóða
gestina velkomna þangað. Þar var og fyrir Jón Brynjólfs-
son, faðir frú Hildar, sýslunefndarmaður. Hann verður
áttræður í haust, en gæti vel sýnzt tuttugu árum yngri,
hár og beinvaxinn, einn af hinum gömlu, góðu Skaft-
fellingum. Fyrst er skoðað umhverfi bæjarins. Fátt minn-
ir á, að þar hafi klaustur verið, annað en bæjarnafnið
og örnefnið Nunnutóftir, — sem bendir til, að systurnai'
408 jöbp