Prestafélagsritið - 01.01.1922, Qupperneq 161
Prestaféiagsritið.
Erlendar bækur.
157
Bók þessi er samin upp úr fyrirlestrum, sem höfundurinn hélt í há-
skólanum í Lundi haustið 1919. Er hann hálærður maður í hebresku og
arameisku, búsettur í Jerúsalem. Tekur hann ýms orð Jesú og ummæli
og skýrir þau með hebreskt og arameiskt orðalag í huga. Bókin er fyrir
lærða guðfræðinga. S. P. S.
„DEN ORTHODOXA KRISTENHETEN OCH KYRKANS ENHET“.
— Stockholm. Svenska kyrkans Diakonistyrelses bokförlag 1921. — 203
bls. 8vo.
Merkileg bók eftir merka höfunda, sem eru þessir: Nikolaus Giubo-
hovski, prófessor fyrv. við háskóla Petrograds, Basileios erkibiskup í
Níkeu, Dorotheus erkibiskup í Konstantínópel, Germanos Strinopulos,
Meletios erkibiskup í Aþenu og Krysostomos Papadopulos. Nær helm-
ingur bókarinnar, sá fyrri, eru 3 löng erindi, Olaus-Petri-fyrirlestrar,
fluttir af fyrst nefndum merkismanni í Uppsalaháskóla haustið 1918,
ágætis erindi. Hinn síðari, röski helmingurinn, er röð greina og sendi-
bréfa eftir alla hina síðartöldu. Lýsir hver höfundur kirkju síns Iands,
sögu hennar, trúarjátningum o. fl., og ber sátta- og friðarorð á milli
hinna ýmsu kirkjudeilda. — Mjög lausleg yfirferð yfir bók þessa sann-
færir um ágæti hennar í alla staði, og mun hverjum þeim, sem yfir hana
lítur, leika hugur á að eignast hana og lesa vandlega. Mun hún sér í lagi
leljast prestum nauðsynleg til fróðleiks og íhugunar. Ó. V.
Norskar bækur,
„NORVEGIA SACRA. AARBOK TIL KUNNSKAP OM DEN
bJORSKE KIRKE I FORTID OG SAMTID. lste aargang 1921". —
Steenske forlag. Kristiania. — 238 bls. í stóru átta blaða broti. — Verð
10 kr. norskar.
Þessi árbók norsku kirkjunnar er gefin út að tilhlutun biskupanna og
hefir að markmiði að fræða um kirkju Noregs fyrrum og nú, eins og
hún var og eins og hún er, sögu hennar, endurminningar, samband við
umheiminn, starf hennar og viðfangsefni.
Danmörk, Svíþjóð og Finnland hafa hvort um sig um allmörg ár átt
málgagn til kirkjusögulegra rannsókna, en hafa bundið rannsóknir sínar
á þessu sviði við fortíðina. Norðmenn vilja láta þær einnig ná yfir nú-
tímann.
„Norvegia Sacra“ ætlar sér að flytja rannsóknir og skýrslur um kirkju-
sögu Noregs, þar á meðal ný heimildarrit, en auk þess lýsingar á nú-
verandi hag og ástandi kirkjunnar, rannsóknir, er fái leitt í Ijós, hversu
þeim kirkjulegum úrlausnarefnum er háttað, er harðasf kalla að, og yfir-