Uppeldi og menntun - 01.01.1994, Page 50

Uppeldi og menntun - 01.01.1994, Page 50
„STRÁKAR OG STEIPUR í TAKT VIÐ TÍMANN" með venjulegar „stelpudúkkur" sem þeir áttu að hugsa um. Sumir kennarar vildu þá sleppa þessu verkefni en aðrir hvöttu drengina til að útbúa einfaldar brúður til að annast og taka þátt í umönnun raunverulegra barna sem foreldrar komu með inn í kennslustundirnar. Þetta reyndist mjög vel og skýringartilgátan er sú að með þessu hafi drengirnir hætt að sjá viðfangsefnið sem stelpuleik en náð að skilja það sem karlmannlegt eins og hlutverk pabba og haft bæði gagn og gaman af (Ve 1991:256-9). Verkefnið virðist ekki hafa haft áhrif á hugmyndir barnanna um það hverjir eigi að vinna heimilisstörfin á þeirra heimilum í framtíðinni en athyglisvert er hvað börnin eru jafnréttissinnuð að þessu leyti bæði í upphafi og í lok verkefnisins. Marktæk megináhrif af athugunartíma komu fram varðandi það hve pabbinn á að vinna mörg störf einn, en þar sem þetta á bæði við samanburðarhópinn og tilrauna- hópinn, verður að skýra þetta með aldri eða annarri reynslu en verkefnisþjálfun- inni. Hvort þetta endurspeglar raunverulega reynslu barnanna eða ekki má túlka niðurstöðurnar eins og fyrr að börnin verði „raunsærri" með aldrinum eða tileinki sér viðhorf sem samræmast hefðbundinni hlutverkaskiptingu kynjanna. Að lokum var kynímynd barnanna athuguð með því að leggja fyrir CSRI-kvarð- ann í lok verkefnisins. Athygli vekur að stúlkurnar í tilraunahópnum eru tiltölulega lágar á kvenlægni og drengirnir tiltölulega háir, bæði miðað við tilraunahópinn og við bandarískar niðurstöður (Boldizar 1991). Þetta samræmist niðurstöðunum úr markmiði 3 varðandi drengina, sbr. það að þeir töldu fleiri heimilisstörf mikilvæg en samanburðarhópurinn. Lægri kvenlægni hjá stúlkunum í tilraunahópnum endurspeglar væntanlega að þær telji að hefðbundin kvenlæg einkenni eigi síður við sig en samanburðarhópurinn. Það þarf ekki að tákna að þær séu síður hreyknar af eigin kynferði eins og svipaðar niðurstöður hafa verið túlkaðar með skírskotun í þá staðreynd að börnin eru smám saman að uppgötva að völd og virðing tengjast fremur karlkyni en kvenkyni (Hall & Halberstadt 1980). Þessi uppgötvun barnanna endurspeglast vel í mati þeirra á sambandi launa og kynferðis, sbr. Töflur 6 og 7. Önnur möguleg skýring er að hugmyndir stúlknanna um kvenleikann séu að brey t- ast í takt við breytta tíma þannig að þær hafni ákveðnum þáttum kvenlægninnar sem ekki þykja lengur jákvæðir.6 Þessar síðustu niðurstöður, sem virðast því já- kvæðar bæði fyrir drengi og stúlkur, ber þó eingöngu að skoða sem vísbendingar sem krefjast nánari athugunar. Markmið mitt með því að leggja kvarðann fyrir var fyrst og fremst að bera niðurstöður saman við notkun mína á honum meðal átján ára menntaskólanema (Guðný Guðbjörnsdóttir 1994) en um leið að athuga hvort verkefnisáhrif birtust á einu stöðluðu mælitæki. Niðurstöðurnar á CSRI-kvarðan- um geta ekki sýnt með óyggjandi hætti að verkefnið hafi skipt máli að þessu leyti. Þessi athugun hefur vakið fjölda spurninga, bæði efnislegra og aðferðafræði- legra, sem aðeins er hægt að reifa hér stuttlega. 6 Sjá nánar hjá Guðnýju Guðbjörnsdóttur (1994). Þar er greint frá ýmsum nýjum rannsóknum á kvenlægni og karllægni þar sem meðal annars hefur komið fram að jákvæð sjálfsmynd stúlkna sýnir meiri fylgni við karllægni en hefðbundna kvenlægni. 48
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138

x

Uppeldi og menntun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.