Uppeldi og menntun - 01.09.2004, Blaðsíða 64
TVÆR STEFNUR
TVENNS KONAR HEFÐIR í KENNSLU UNGRA BARNA
ár í leikskóla en Andrea hafði unnið sem leikskólakennari í 10 ár. Grunnskólakennar-
arnir höfðu sömuleiðis mislanga reynslu. Sara hafði 30 ára kennsluferil að baki, en
María hafði unnið sem grunnskólakennari í 17 ár við upphaf rannsóknarinnar.
Jóna starfar í leikskólanum Brekkukoti en þar eru 58 börn á aldrinum 2-6 ára á
þremur aldursblönduðum deildum. Á deild Jónu eru 17 börn og þar starfa, auk
hennar, starfsstúlka í fullu starfi og leikskólasérkennari í hlutastarfi. Andrea starfar í
leikskólanum Sumarhúsum, en þar eru 42 börn á aldrinum 1-6 ára á þremur aldurs-
skiptum deildum. Andrea vinnur með 5-6 ára börnin á elstu deildinni. Fimmtán börn
eru á deildinni og auk Andreu er starfsstúlka í fullu starfi með henni og starfsmaður
sem ráðinn hefur verið til að sinna fötluðum dreng á deildinni.
I grunnskólunum tveimur voru börn á aldrinum 6-12 ára sem skipt var í bekki
eftir aldri. María starfar í Bryggjuskóla þar sem voru 375 börn, þar af 45 börn í fyrsta
bekk sem kennt var sem heild. Tveir umsjónarkennarar voru með hópinn en auk þess
unnu með þeim inni í bekknum grunnskólakennari, stuðningsfulltrúi og sérkennari.
Sara starfar í Hæðaskóla, en þar voru 532 börn, þar af 63 í fyrsta bekk. í bekk Söru var
21 barn og var hún yfirleitt ein með hópinn.
Aðferðir
Við rannsóknina voru notaðar eigindlegar rannsóknaraðferðir og var gagna aflað
með þátttökuathugunum, formlegum og óformlegum viðtölum og söfnun ritaðra
gagna. Einnig hélt ég dagbók þar sem ég skráði hugleiðingar mínar og hugmyndir.
Þátttökuathuganir
Ég dvaldi í skólunum og fylgdist með kennurunum í starfi, í kennslustofunum, leik-
skóladeildunum og á leikvellinum í fimm mánuði, frá janúar fram í júní árið 2002.
Rannsóknin hófst með athugunum og var fylgst með starfi kennaranna á ýmsum tím-
um dags og mismunandi vikudögum. Ég fór alls 35 sinnum í grunnskóiana og 30
sinnum í leikskólana, athuganirnar stóðu frá einni klukkustund eða einni kennslu-
stund upp í heilan skóladag í einu. í upphafi voru athuganirnar víðar en þegar á leið
var sjónum beint að afmarkaðri þáttum. Ég var í hlutverki rannsakanda sem þátttak-
anda (Spradley, 1980). í fyrstu fylgdist ég einkum með en þegar leið á rannsóknina
tók ég meiri þátt í starfinu í skólunum. T.d. tók ég þátt í umræðum á kennarastofum
og aðstoðaði börnin ef þau báðu um hjálp eða ræddu við mig að fyrra bragði.
Viðtöl
Þegar leið á gagnasöfnunina voru tekin formleg viðtöl við kennarana og spurt út í
þætti í starfi þeirra, hugmyndir þeirra og skoðanir. Viðtölin voru hálfskipulögð og
tekin upp á segulband og afrituð á eftir. Alls tók ég tólf viðtöl, tvö við hvern kennara
og einnig tók ég viðtöl við skólastjórana. í fyrstu viðtölunum við kennarana voru þeir
spurðir um kennslureynslu þeirra, námskrána, daglegt skipulag og megináherslur.
Ég spurði þá einnig um hvort þeir sæju áherslubreytingar í starfi sínu í áranna rás og
hvaða áhrif þeir teldu nýjar aðalnámskrár hafa. Einnig um samstarf við foreldra og
hitt skólastigið. í seinni viðtölunum voru þeir spurðir nánar út í þessi atriði með til-
62