Uppeldi og menntun - 01.09.2004, Page 84

Uppeldi og menntun - 01.09.2004, Page 84
KENNARAR OG EINELTI: að til hvaða starfsmanns skóla sem er með mál sem snúa að velferð þeirra og líðan og eiga rétt á að brugðist sé við strax og á viðeigandi hátt ef upp koma vandamál af ein- hverju tagi, t.d. stríðni, einelti, agabrot eða vanlíðan. Að vinna gegn einelti er því einn af þeim þáttum sem kennarar og annað starfsfólk skóla ber ábyrgð á. í aðalnámskrá kemur einnig fram að áætlun um hvernig skuli brugðist við ef upp kemst um einelti verður að vera til í öllum skólum og öllum aðilum verður að vera Ijóst hver vinnur með slík mál innan skóla og hvernig (Aðalnámskrá grunnskóla, 1999). Þrátt fyrir að eitt af hlutverkum kennara sé að taka á einelti og að þeir standi nem- endum næst í daglegu skólastarfi, sýna rannsóknir að margir kennarar eiga í erfið- leikum með að koma auga á einelti meðal nemenda sinna og grípa of sjaldan inn í (Skiba og Fontanini, 2000). Þeir virðast oft vanmeta tíðni eineltis, líða það eða líta fram hjá því (Lumsden, 2002). í rannsókn á Bretlandi og írlandi sögðust 85% kennara alltaf eða oftast reyna að stöðva einelti en aðeins 35% nemendanna sögðu að sú væri raunin. Um 60% nemenda sem höfðu lagt aðra nemendur í einelti sögðu að kennar- ar hefðu ekki rætt við þá um eineltishegðun þeirra (O'Moore, Kirkham og Smith, 1997; Pepler, Craig, Ziegler og Charach, 1994). í íslenskri rannsókn á vegum Olweus- arverkefnisins, kom í ljós að 57% nemenda í 8.-10. bekk töldu að umsjónarkennari þeirra hefði lítið eða ekkert gert til að koma í veg fyrir einelti í bekknum („Viðamikil könnun", 2003). í ljósi þessara niðurstaðna er nauðsynlegt að kanna hvernig kennur- um hérlendis finnst þeim ganga að greina og fást við einelti. Þau viðbrögð kennara að koma ekki auga á eða líta framhjá einelti hafa þau áhrif að einungis lítill hluti nemenda trúir því að fullorðnir muni hjálpa þeim. Nemendum finnst að afskipti fullorðinna séu sjaldgæf og áhrifalítil og það að segja fullorðnum frá geri eineltið einungis verra (Banks, 1997). Þetta veldur því að nemendur sem lagðir eru í einelti bíða oft lengi með að segja fullorðnum frá eða gera það alls ekki. Skiln- ingsleysi á einkennum og afleiðingum eineltis hefur áhrif á aðgerðir fullorðinna. Kennarar sem líta svo á að einelti sé ekki alvarlegt og að það sé ekki á þeirra ábyrgð að taka á því eru ekki líklegir til að grípa til aðgerða. Því er mikilvægt að kanna hvaða augum kennarar hér á landi líta einelti og hver viðhorf þeirra til þessara mála eru. Þrátt fyrir að þessar rannsóknir sýni að kennarar hafi ekki alltaf brugðist við eins og best væri kostur er mikilvægt að benda á að þeir bera ekki einir ábyrgð á að leysa slík mál. Auk þess verður að hafa í huga, þegar rætt er um stöðu kennara gagnvart einelti, að ekki er langt síðan að það var almennt viðurkennt sem vandamál í skólum (Nicolaides, Toda og Smith, 2002). Með aukinni vitneskju um einelti og afleiðingar þess eru sífellt fleiri skólar og kennarar farnir að vinna gegn einelti á árangursríkan hátt. Einnig er mikilvægt að benda á að hlutskipti kennarans er ekki auðvelt. Margir halda því fram að álag á kennara hafi margfaldast á síðustu áratugum (Thompson, o.fl., 2002). Á sama tíma hefur agaleysi og ofbeldi aukist í samfélaginu (Slaby, Roedell, Arezzo og Hendrix, 1995). Á Bretlandi og í Bandaríkjunum hefur komið í ljós að margir kennarar eru að gefast upp í starfi. Þeir eru störfum hlaðnir og sífellt bætast við ný verkefni sem þeir eiga að sjá um, eins og eineltismálin. í könnun á Bretlandi kom í ljós að 53% kennara reiknuðu með að hætta í starfi á næstu tíu árum vegna vinnuálags, streitu og skriffinnsku (Bully Online, 2003). Sama er uppi á teningnum hjá íslenskum kennurum, þeim finnst þeir vera undir miklu álagi í starfi, þeir finna 82
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196
Page 197
Page 198
Page 199
Page 200
Page 201
Page 202
Page 203
Page 204

x

Uppeldi og menntun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.