Uppeldi og menntun - 01.09.2004, Page 87
VANDA SIGURGEIRSDÓTTIR OG SIF EINARSDÓTTIR
og þjálfun; þar er spurt um hvort kennarar hafi fengið fræðslu um einelti í kennara-
námi sínu, þeir beðnir að leggja mat á gæði hennar og hvort hún hafi búið viðkom-
andi vel eða illa undir að takast á við einelti. Einnig er spurt um viðhorf til fræðslu
og þjálfunar í kennaranámi. í hluta III eru viðhorf og hugmyndir kennara um einelti
kannaðar. Meðal annars er spurt um hvort þeir telji að börn og unglingar geti leyst
eineltismál upp á eigin spýtur, hvort einelti sé mikið vandamál í íslenskum skólum
og hvort kennarar beri ábyrgð á að taka á einelti meðal grunnskólabarna. Hluti IV
fjallar um greiningu á eineltisvanda þar sem spurt er hvernig kennurum gangi að
greina og koma auga á einelti. í hluta V, síðasta hlutanum, eru kennarar spurðir um
hvernig þeim gangi að takast á við einelti, um líðan þeirra og hvað komi helst í veg
fyrir að þeir taki á einelti með árangursríkum hætti.
Framkvæmd
í febrúar 2003 var haft samband símleiðis og/eða með tölvupósti við skólastjóra eða
aðstoðarskólastjóra í skólunum 20 sem valdir höfðu verið til þátttöku og þeir beðnir
um leyfi til að leggja listana fyrir í þeirra skólum. Greiðlega gekk að fá samþykki og
enginn stjórnendanna neitaði þátttöku. Einnig fór fram forprófun á spurningalistan-
um þar sem fimm starfandi kennarar voru beðnir um að svara spurningalistanum og
gera við hann athugasemdir. Þeir gerðu ýmsar gagnlegar athugasemdir og var listinn
lagfærður í samræmi við það. Síðan var hann sendur til yfirlestrar hjá leiðbeinanda
og sérfræðingi verkefnisins ásamt umsjónarmanni meistaranáms við Kennarahá-
skóla íslands. í framhaldi af því var hann færður í endanlegt horf. Rannsóknin var
síðan tilkynnt Persónuvernd og barst staðfesting um að tilkynningin hefði verið mót-
tekin án þess að nokkrar athugasemdir væru gerðar. Eftir það hófst gagnasöfnun sem
fór fram með þeim hætti að í lok maí 2003 voru spurningalistar sendir í pósti til
tengiliða, sem tóku á móti listunum og sáu um fyrirlögn. Með spurningalistunum
fylgdi bréf til kennara þar sem greint var frá tilgangi rannsóknar, trúnaður ítrekaður
og óskað eftir þátttöku þeirra en einnig var tekið fram að þeim væri frjálst að taka
þátt í rannsókninni. Einnig fylgdu leiðbeiningar um fyrirlögn til tengla og var meðal
annars lögð áhersla á hlutleysi þeirra við fyrirlögn og ítarlega útskýrt hvernig þeir
ættu að bera sig að til að tryggja trúnað við þátttakendur. Auk þess fylgdi merkt og
frímerkt umslag sem tengiliðir voru beðnir um að setja útfyllta listana í og póstleggja
til rannsakenda.
NIÐURSTÖÐUR
í töflu 1 er sýnd samantekt á svörum kennara við spurningum um þjálfun og fræðslu,
viðhorf þeirra, greiningu á einelti og viðbrögð við einelti. Nánar er fjallað um hvern
þessara þátta í þessum kafla. Vikmörk eða svokölluð öryggisbil niðurstaðnanna,
reiknuð miðað við 95% öryggismörk, eru sýnd innan sviga.
85