Uppeldi og menntun - 01.09.2004, Page 110
BOÐSKIPTI í LEIKSKÓLA
Hlutleysi
í heild einkenndist tilfinningalegt andrúmsloft milli barna og starfsmanna af hlut-
leysi. Athafnir barnanna og tilraunir til að koma leik af stað voru ekki nýttar til þess
að skapa tengsl á milli þeirra. Sigrún kom inn á leiksvæðið til þess að leiðrétta hegð-
un barnanna án þess að benda þeim á hvernig þau gætu leikið sér. Tumi virðist eiga
í erfiðleikum með að byrja í leik, t.d. hvernig hann á að fá Ástu og hinar stúlkurnar
til þess að koma í búðarleik. Leikurinn reynir á samskipti barnanna og á hæfni þeirra
til að deila með öðrum. Ásta sýndi áhuga á að fara í fjölskylduleik. Hún reyndi t.d.
að tjá það með orðum en tekst ekki að koma leik af stað. Sigrún sýnir ró og festu
þegar átök eiga sér stað milli Tuma og Ástu. Tilfinningar eru ekki sýndar né ræddar
nema þegar kennari strýkur um koll Ástu eftir að til árekstrar hafði komið.
Dæmi úr hópstarfi
Hér á eftir verður greint frá tveimur dæmum úr hópstarfi, annars vegar þar sem
stuðningur frá kennara var ríkjandi og hins vegar þar sem nemendurnir fengu ekki
þann stuðning sem þeir þurftu og leituðu eftir.
1. Hvaða dýr eru í húsdýragarðinum?
Þemavinnan fór fram í listaskála og stóð yfir í 30 mínútur. í hópnum voru sex börn
auk Einars. Gunnar sat við endann andspænis glugganum við hlið Einars. Við lang-
hlið borðsins sat Fríða og Gyða við hlið hennar, Arna við endann og ívar á móti
Gyðu. Daði sat við hlið ívars með Guðrúnu leikskólakennara við hlið sér.
Börnin höfðu heimsótt Húsdýragarðinn og nú átti úrvinnsla ferðarinnar að fara
fram. Það sem einkenndi stundina var hversu áhugasöm og glöð börnin voru. Fjörug-
ar umræður fóru fram en börnin voru misvirk í umræðunni. Rætt var um það sem
fyrir augu bar í ferðinni, þau báru fugla saman, hvað var líkt og ólíkt með þeim. Börn-
in tengdu fyrri reynslu sína og hugmyndir við umræðuefnið. Að umræðu lokinni
fengu börnin blöð í hendur og voru beðin um að teikna hænu eða eitthvað annað sem
tengdist vettvangsferðinni. Bæði börn og kennari virtust njóta stundarinnar og ríkti
eindrægni í hópnum. Athyglin beinist að því hvað Einar gerir til þess að vekja á sér
athygli og íhlutun og leiðsögn kennara. Eftirfarandi er dæmi um ríkjandi boðskipti í
hópstarfinu.
Einstaklingur og hópur
Byrjað er á umræðum um vettvangsferðina. Einar lítur öðru hverju á fuglaspjaldið á
veggnum meðan á umræðum stendur, iðar jafnframt og teygir hendurnar í átt til
Guðrúnar leikskólakennara. Umræðan berst að varpi fuglanna og beinist að fuglun-
um á spjaldinu. Einar horfir á spjaldið og segir „en krumma?", bendir, setur tunguna
út úr sér og horfir aftur á Guðrúnu sem svarar ekki.
Einar biður um hvítan lit. Guðrún segir að sennilega sé hægt að lita með hvítum
lit og tengir það lit á hænunum í Húsdýragarðinum og beinir umræðunni til barna-
hópsins. Einar reynir að fanga athygli Guðrúnar og bendir á myndina sína þegar hún
108