Uppeldi og menntun - 01.09.2004, Page 172
MEÐ GILDUM SKAL LAND BYGGJA - GILDAGRUNNUR SKÓLANS
grunnmenntun („enhetsskola" hugmyndin).1 Skólaskyldan átti að tryggja jafnan rétt
allra til menntunar. Manngildið og jafnréttishugsjónin eru hér hornsteinar mennta-
kerfisins.
Mikilvægasta hlutverk skólans er að mennta ungmenni til að viðhalda samfélag-
inu í framtíðinni. Þessi hugmyndafræði endurspeglast í skólastefnu stjórnvalda
hverju sinni og birtist nánar í uppbyggingu, skipulagi og innra starfi skólans. Lög um
grunnskóla eru sett á Alþingi en námskráin er samin í Menntamálaráðuneytinu og
hefur hún lagalega séð ígildi reglugerðar. Markmið skólastarfsins eiga að gefa vís-
bendingar um í hvaða átt starfið skuli stefna en hver skóli getur valið leiðir að settu
marki innan ramma laga og námskrár. í hinni nýju námskrá fyrir grunnskóla frá 1999
er þannig áhersla lögð á að skólar hafi frelsi til að velja hvaða leiðir þeir kjósa að fara
til að ná hinum opinberu markmiðum. Þetta er í anda markaðshyggju þar sem
skólum er gert mögulegt með þessu að keppa sín á milli um nemendur og hafa á
þann hátt áhrif á fjárhagsstöðu sína (Gunnar E. Finnbogason, 1995).
Þegar skólastefnan er skoðuð nánar má finna viðmið (norm) og gildi sem skóla-
starfið grundvallast á. Hvaða viðmið og gildi eru þetta? Úr hvaða hugmyndajarðvegi
eru þau sprottin? Hvers vegna eru þessi viðmið og gildi mikilvæg? Þau gildi sem
móta eiga skólastarfið mynda gildagrunn skólans. Hver er þessi gildagrunnur og
hvaða hlutverk er honum ætlað í skólastarfinu? í greininni verður leitast við að svara
þessum spurningum með því m.a. að skoða nánar almennan hluta námskrár frá 1976,
1989 og 1999. Til að fá samanburð er umræðan um gildi og gildagrunn í Svíþjóð sér-
staklega skoðuð og varð Svíþjóð fyrir valinu vegna þess að höfundur þekkir vel um-
ræðuna þar í landi.
BAKGRUNNUR
Áhrif gilda og viðmiða á einstaklinga og samfélög er flókið fyrirbæri. Á Vesturlönd-
um hefur kristindómurinn haft mótandi áhrif á gildagrundvöll ólíkra samfélaga.
Þessi áhrif voru sterkari fyrr á öldum en þau eru nú. Vissir fræðimenn ganga svo
langt að halda því fram að nútíminn einkennist af upplausn gilda. Émile Durkheim
(1858-1917) hefur m.a. bent á að nútíma samfélag einkennist af upplausn gilda og
viðmiða, félagslegt siðrof (anomi) hafi átt sér stað. Með siðrofi á hann við skort á
félagslegu taumhaldi, en afleiðingar þess eru að félagsleg tengsl eða samsömun ein-
staklinga við hópa og samfélagið rofna (Durkheim, 1952).
Ríkjandi hugmyndafræði einveldisins, varðandi fræðslu alþýðu, var hinn
lútherski kristindómur sem átti að vera límið sem héldi samfélaginu saman. Skólinn
átti að þjóna ríkinu með því að standa vörð um trúarbrögðin. Siðferði og kristindóm-
ur áttu að fara saman. Kristindómurinn átti að viðhalda siðferðinu og siðferðið rétt-
lætti kristinfræðikennsluna í skólum. Árás á kristindóminn jafngilti árás á grundvall-
1 „Enhetsskola" - hugtakið stendur fyrir ákveðna menntastefnu sem grundvallast á rétti allra barna
og unglinga til sömu menntunar og við hæfi hvers og eins. Sameiginlegt menntakerfi á að grund-
vallast á sameiginlegri námskrá og skólaskyldu allra barna upp að ákveðnum aldri (Telhaug,
1994).
170