Búnaðarrit - 01.01.1906, Blaðsíða 9
BÚNAÐARRIT
5
rækt og hús öll í mjög slæmu standi. Hann heflr slétta&
í túni 17 dagsl., mikið af því úr óræktar-móum, sem
ekki var borið við að slá, gert varnarskurði með garði
á þrjár hliðar túnsins að lengd 700 faðma, bætt stórum
engi með miklum skurðum til þurkunar og áveitu, stækkað
sáðreiti, gert engjabrú, sléttað sleðabraut til aðdráttar á
grjóti o. fl. Töðufall meir en þrefaldast. Hann heflr
bygt traustan og reisulegan bæ, komið upp 3 mjög
stórum hlöðum járnþöktum o. fl. Hann heflr rneð góð-
um árangri lagt stund á kynbætur búpenings. Hann
heflr um langan tíma verið aðal-frömuður allra framfara-
fyrirtækja í sveit sinni, og verið formaður búnaðarfélags
hreppsins.
58. Ólafur Porbjarnarson, óðalsbóndi á Kaðals-
stöðum í Mýrasýslu. Hann heflr setið þá jörð 27 ár
og tók við henni mjög niðurníddri í alla staði. Túna-
sléttur hans fullar 10 dagsl., túnið algirt með vörzlu-
skurði og garði, girtur túnauki um 7 dagsl., miklir
traðargarðar, byrjuð girðing um. beitarhús o. fl. Töðu-
fallið aukist af gamla túninu úr 150 hestum í 300.
Hann heflr reist vandað íbúðarhús af timbri, og 3 hlöður
sem taka samtals 900 hesta, fjárhús 12 að tölu, þar af
4 beitarhús i úthaga yfir 550 fjár, o. fl. Sjálfur heflr
hann smíðað jarðyrjuverkfæri sín, svo sem herfl, skera
og aktýgi.
Þot,ta árið voru 15 umsóknir: 3 úr Borgarfj.s., 1 úr MýraB.,
1 úr Húnav.s., 1 úr Eyjaíj.s., 1 úr S.-Múlas , 1 úr Y.-Skaft.af.s.,
3 úr Rangárvallas., 3 úr Árness. og 1 úr Kjósar og Gullbr.s.
.Arid 1904.
59. Guðmundur ísleifsson, óðalsbóndi á Stóru-
Háeyri í Árnessýslu. Eitf. hið stærsta mannvirki hans
er garður úr grjóti fyrir öllu Háeyrarlandi, 823 faðmar
á lengd, 8 fet á breidd að neðan, 4 fet að ofan og 5 fet
á hæð til jafnaðar. (íarðurinn hefir st.órum bætt land
Háeyrartorfunnar og Eyrarbakka yflr höfuð, varnað