Búnaðarrit - 01.01.1906, Blaðsíða 39
BÚNAÐARRIT
35
er þeir búa á. Af 28 búendum, eru 24 á sjálfs síns
eign. Auk þess er það trygð við sveitina, er heldur í
fólkið, að það ekki flytur í burtu, enda er þar viða fall-
egt útsýni og veðursæld, einkum í norðanátt.
Öræfingar eru félagssinnaðir og hjálpfúsir. Þegar
einhver í sveitinni þarf að húsa bæinn sinn, þá koina
nágrannar hans til að hjálpa honum, án nokkurs endur-
gjalds. En svo gerir sá hinn sami, sem hjálpað var,
hinum sömu skil. Þannig vinna þeir hvor hjá öðrum
í félagi, þegar í eitthvað er ráðist, og það án þess, að
nokkuð sé reiknað í þeim viðskiftum.
Öræfingar sækja í kaupstað, annaðhvort austur á
Höfn í Hornafirði eða vestur í Yík í Mýrdal. Það eru
erfið og iöng ferðalög. Tekur ferðin austur 8—9 daga,
en út í Vík 10—11 daga. Þessar ferðir fara þeir vor
og haust, og stundum þriðju ferðina seinni hluta vetrar,
og leggja þá margir saman.
Austur-Skaftafellssýsla hefir orð á sér fyrir, að þar
séu góðir hestar. Beztir eru þeir í Hornafirði eða Nesj
um, en duglegastir í Öræfum. Hestarnir eru jafnir að
vexti, frá 5Ú/2—53 þuml. á hæð. Hjá séra Pétri Jóns-
syni á Kálfafellsstað sá eg brúnan fola 3 vetra, er var
5272 þuml. á hæð. í ferðinni sá eg annan fola bleikal-
óttan hjá Einari bónda á Höskuidsstöðum í Breiðdal,
sem var einnig 52^2 þuml. á hæð.
í austursýslunni er að eins einn verzlunarstaður,
á Höfn í Nesjum; en dýrseld þykir hún verzlunin sú.
Allur varningur í háu verði, þar á meðal álnavara öll,
sem er alt að því helmingi dýrari þar en í Reykjavík.
í Vestur-Skaftafellssýslu eru 7 hreppar. Austasta
bygðin, vestan Skeiðarársands er Fljótshverfið. Þar eru
10 bæir og tvíbýli á einum þeirra. Eru það flest góðar
fjárjarðir, útbeit góð, en heyskapur lítill. Þá tekur við
Siðan meðfram fjöllunum, en Brunasandur neðra, og
eru á honum 5 bæir. Á Brunasandi eru góðar heyskapar
jarðir, og mikið mætti bæta þær meir en gert er með
3*