Búnaðarrit - 01.01.1906, Blaðsíða 41
BÚNAÐARRIT
37
liæð, og 27—30 fet á breidd að neðan. — Sumt af
þessum verkum hefir hann unnið í félagi við sambýlis-
mann sinn, Pál Sigurðsson. — Síðastliðið ár hefir Helgi,
eftir því sem hann skýrir mér frá i brófi, dags. 29. nóv.
f. á., unnið 472 dagsverk að jarðabótum. Sambýlismaður
hans, Páll, nokkuð minna. Yerkstjóri við þessar jarða-
bætur hefir verið Þorlákur Vigfússon búfr., ættaður úr
Skaftártungunni.
Auk þessara jarðabóta, hefir Helgi á siðastl. ári
reist timburhús, tvílyft, 14x12 álna stórt, og vandað
mjög að allii gerð. Um dugnað Helga má ennfremur
geta þess, að síðastl. vor flut.ti hann heim utan úr Vík,
meðan verið var að byggja húsið, 72 hestburði af við í
6 ferðum. Fór hann hverja ferð á 3 dögum í stað þess
sem menn eru vanalega úr Landbrotinu, 4V2— 5 daga
út í Vík og heim aftur.
Iiúsakynni eru yfirleitt góð í þessum sveitum, og
timburhús á nokkrum stöðum, þar á meðal á Prests-
bakka hjá séra Magnúsi Bjarnarsyni, Breiðabólsstað,
Holti, Þykkvabæ og víðar. Heyhlöður eru og á hverjum
bæ, og sumir hafa komið upp hiöðum undir öll sín hey.
— Skilvindur eru þar á flestum bæjum, og eldavélar
mjög víða.
Áður en eg skilst við Siðuna eða þessar umgetnu
sveitir, vil eg minnast lít.ið eitt á Stjórnarsands áveituna.
Stjórnarsandur eða öðru nafni Klausturssandur
liggur milli Skaftár að sunnan og Geirlandsár eða Breið-
baiakvíslar .að vestan, og þrýtur þar er ár þessar koma
saman austan við sandinn. Hann er talinn að vera
hér um bil 2500 vallardagsl. — - Fyrir rúmum 20 árum
síðan var sandur þessi algerlega gróðurlaus, og kom eng-
um þá til hugar að þar myndi nokkru sinni vaxa gras.
En árið 1886 er byrjað að veita á sandinn, og hefir því
síðan verið haldið áfram til þessa, og svæðið, er vatnið
fer yfir, smá aukið. Það eru náiægt 3/r> hlutar sandsins,
sem vatninu hefir orðið náð á, og er sá hluti hans meira