Búnaðarrit - 01.01.1906, Blaðsíða 266
260
BÚN AÐ ARRITIÐ
kaus hreppstjóra Þórð Guðmundsson í Hala í forstöðunefnd
sýningarinnar, Þorstein Thorarensen óðalsbónda Móeiðar-
hvoli í dómnefnd fyrir graðneyti og Runólf hreppstjóra
Halldórsson á Rauðalæk í graðfoladómnefndina. — Frá
Búnaðarfélagsins hálfu var undirritaður í forstöðunefnd
sýningarinnar og dómnefnd fyrir graðfola, en Sigurður
Sigurðsson ráðunautur í nautadómnefndinni.
Forstöðunefnd sýningarinnar samdi eftirfylgjandi aug-
iýsingu um sýninguna, er birt var í 5. hefti Ereys, og
sérprentun send af í alla hreppa sýslnanna beggja, og
auk þess fest upp við Þjórsárbrú, Ölfusárbrú og í sölu-
búðum á Eyrarbakka og Stokkseyri:
»Héraðssýning við Pjórsárbrú.
Laugardaginn 14. júlí n. k. verður héraðssýning fyrir Árnes-
og Rangárvailasýslur lialdin við Þjórsárbrú, og hefst kl. 10 fyrir
hádegi.
Verðiaunaðir verða:
1. Griðungar 2 ára og eldri.
2. Graðfolar 3 ára og eldri.
Verðlaunaféð er 600 kr. alls.
Verðlaun verða jafnhá bœði fyrir graðnoyti og stóðhesta,
fyrstu verðlaun 40 kr., önnur verðlaun 30 kr., þriðju verðlaun
20 kr. og fjórðu verðlaun 10 kr. Sýningarnofndin ákveður nán-
ar fjölda verðlaunanna, þegar hún fœr að vita, hvað margir grip-
ir af hvorri tegund verða sýndir.
Ásamt verðlaununum verður úthlutað skrautprentuðu verð-
launaskírteini með árituðu nafni og heimili eiganda og nafni og
aldri gripsins.
Allir þeir er sýna vilja gripi á nefndri sýningu, vorða að
tilkynna það Símoni oddvita Jónssyni á Selfossi, eða Ólafi brúar-
verði ísleifssyni við Þjórsárbrú fyrir 1. júlí, og gefa þoim jafn-
framt nákvæmar upplýsingar um ahlur, lit og ætterni gripanna,
liæð á graðfolum, ársnyt hjá móður og ömmu tarfsins, og feiti-
magn mjólkurinnar, sé það þokt. Loks skal geta um of gripur-
inn hefir hlotið verðlaun og þá hvaða, hvenær og hvar.
Allir sem verðlaun ldjóta, verða að nota oða láta nota verð-
launagrip sinn til kynbóta á sýningarsviðinu minst eitt ár frá
sýningardegi, nema að óviðráðanleg atvik hindri, ella að endur-
borga syslusjóði þeirrar sýslu, er þoir búa í, vorðlaunaféð með
6°/o vöxtum.