Búnaðarrit - 01.01.1906, Síða 34
30
BÚNAÐARRIT
bændur 100—400. — Péð er fremur rýrt og veldur því
meðfram skortur á góðri afrétt. Hross eru þar mörg,
og þaðan koma margir góðir reiðhestar, þíðgengir og
viljagóðir. — Túnræktin er þar í framför, enda er þar
einkarvel fallið t.il túnbóta, og óviða á iandinu betur lagað
til þess. Nesin gætu verið svo að segja öll eitt tún,
að minsta kosti öll miðsveitin. Búnaðarfélag er þar í
sveitinni og eru i því 20 bændur. Árið 1903 voru þar
unnin nálægt 300 dngsverk.
Síðastliðið sumar hélt það plægingarmann, og plægði
hann nálægt 20 dagsl., mest í móum utantúns. Þetta
eru þær fyrst.u plægingatilraunir í allri Austur-Skafta-
fellssýslu. Formaður félagsins er Guðmundur Jónsson
búfræðingur og bóndi i Þinganesi. Mestar jarðabætur
síðustu árin hafa þeir gert Þorl. Jónsson í Hólum og
Jón Guðmundsson á Hoffelli. Aburðarhús eða haughús
eru þar hvergi, og túnin víða ógirt,. — En hitt er víst,
að í Nesjum er vaknaður almennur áhugi á jarðabótum,
og þá sérstaklega á því að girða túnin og auka þau. —
Einnig er þar í ráði að girða fyrir svo nefndan Laxárdal,
og nota hann sem afrétt fyrir hrossastóðið, er gengur
sjálfrátt og hindrunarlaust innan um heimalöndin til ó-
bætanlegs tjóns og niðurdreps. Það er áætlað, að þessi
girðing kosti 600—700 kr.
Garðrækt er nokkur i Nesjum, en gæti verið miklu
meiri. Jón Guðmundsson á Hoffelli fékk, sumarið 1904,
urn 20 tunnur úr sínum görðum, sem eru á þriðja hundr-
að fer-faðmar. Þar hefi eg borðað einhverjar þær beztu
kartöflur, er eg man eftir. — Bæiarhúsbyggingar eru
viða góðar á Nesjum. Þar eru timburhús á 5 bæjum.
Skilvindur eru á 18 heimilum og eldavólar á hverjum
bæ. Hlunninda-jarðir eru þar og nokkrar, silungsveiði
á flestum jörðum, eggvarp og dúntekja á 6. Á þessum
6 bæjum fengust af dún 1904, 75 pd. als. Efnahagur
manna er þar alment góður, og menning i betra lagi,