Búnaðarrit - 01.01.1906, Blaðsíða 270
264
BÚNAÐARRITIÐ
brestir urðu þó á því, og komu sumir gripirnir jafnvel
ekki fyr en um eða eftir 11, og lág við sjálft að þeir
yrðu gjörðir afturreka.
Dómnefndirnar tóku til starfa um 101/^ leytið. Þær
skoðuðu hvor sinn hluta sýningargripanna vandlega, og
rituðu stutta lýsingu á þeim. Um 5 leytið höfðu þær
lokið starfi sínu, og voru þá hengdir miðar á alia verð-
launagripina með áletraðri verðiaunaröð, til þess að gefa
fólki sem bezt tækifæri til að skoða þá og bera saman.
Eg set hér listana yfir verðiaunagripina, ásamt lýs-
ingunni af þeim, i sömu röð og þeir voru verðlaunaðir.
I. Graðfolar:
1. Sóti*, eigandi Guðmundur Erlindsson Skipholti,
undan skjóttri hryssu, faðerni óþekt. Sótrauður,
4 vetra, 521/-.' þuml; sterklegur, stór, samsvarar sér
vel, ágætlega settir fætur, sterklegir og gallalausir,
ágætir hófar. Höfuðið nokkuð stórt, hálsinn stutt-
ur og gildur og lendin heldur brött. Ganguriun
reglulegur, vakur, viijugur.
Önnur verðlaun 30 krónur.
2. Stormur', eigandi Ögmundur Sveínbjörnsson Þórar-
insstöðum, undan mótoppóttri reiðhryssu úr Álfta-
veri, faðerni óþekt. Rauðvindóttur, 5 vetra, öl1/^
þumi., allsterklegur. Höfuð og háls góður, hryggur
beinn en nokkuð iangur, síður heldur lítið útskotn-
ar, lendin löng en heldur brött. Framfótaleggirnir
nokkuð mjóir og nærstæður á afturfótum. Vakur,
viljugur. Hefur verið aðalkynbótahestuj' í Hruna-
mannahreppi undanfarin 2—3 ár.
Önnur verðlaun 30 krónur.
3. Brúnn, eign Hiossaræktarfélags Austur-Landeyinga,
ættaður frá Oddhól á Rangárvöllum, undan brúnni
reiðhryssu og rauðsokkóttum reiðhesti, sem Páll
Stefánsson í Ási á. Brúnn, 3 vetra, 51 x/2 þuml.
Höfuðið frítt, háls mjög vel reistur en nokkuð gild-