Búnaðarrit - 01.01.1906, Blaðsíða 15
BÚNAÐARRIT
11
aharfélaginu vel kleift og eigi stórum dýrar.a en leiguhús
við þ:ið, að efra loftið verður leigt hinni væntanlegu stofn-
um til efnarannsókna, og bústaðurinn verður miklu betri
og hentugri, en nokkursstaðar hefði verið hægt að fá á
leigu, 4 stofur á gólfi; verða tvær fyrir starfsmenn fé-
lag'dns, ein til bókageymslu og hin fjórða, sem er lang-
stærst, til kenslu og fundarhalda. Búnaðarþingið heim-
ilaði alt, að 20,000 kr. til húsbyggingarinnar, hafði það
svo rifíegt, ef til þess kynni að koma að bygt væri úr
steini, en nú reistu iðnaðarmenn sitt hús úr timbri og
varð því Búnaðarfélagið að hafa sitt hús úr sama efni.
Hiisið á að vera fullgert um sumarmál, og beztu horfur
á að svo verði. Við þessa ráðstöfun á lóð Hússtjórnar-
skólans, er horfið frá því að reisa þeim skóla hús í Reykja-
vik. Nefud, sem skipuð var á búnaðarþinginu til að ræða
malið, taldi heppilegra, að svo framarlega sem kæmi til
þess, að nýr hússtjórnarskóli væri stofnaður, þá væri hann
hafður á sveitarjörð, en ekki i kaupstað. Fyrir sumum
fulltrúunum mun það og hafa vakað, að bíða átekta með
það, hvað yrði úr hinni nýuppteknu hússtjórnar eða bú-
sýsludeild við Kvennaskóla Reykjavikur, sem vísast kynni
að Jeysa Búuaðarfólagið af hólmi með slíka kenslu í
Reykjavík.
Félagsstjórnin hafði farið fram á 35,000 kr. styrk
ur landssjóði árið 1900 og 37,000 kr. árið 1907, auk
styrksins til mjólkurmeðferðar-kenslunnar á Ilvítárvöll-
völlmn, sem Búnaðarfélngið hefir hönd yfir. Sá styrkur
nemur þetta fyrra ár 4000 kr. en hið síðara 3000 kr.
og hefir 1000 kr. aukaveitingin árið 1906 gengið til að
korna upp geymsluhúsi fyrir mjólkurskólann, sem reist
var í haust sem leið. Nu fór búnaðarþingið fram á
6000 kr. hækkun áiið 1900 og 7000 kr. hækkun árið
1907, og af þessum 13,000 kr. viðauka skyldu 9800 kr.
ganga til ræktunarfyrirtækja, og mestur hluti þeirrar
upphæðar aftur til Ræktuuarfélags Norðurlands, nýtur
það því að mestu hækkunarinnar á alþingi frá frumvarpi