Búnaðarrit - 01.01.1906, Blaðsíða 37
BÚNAÐARRIT
33
Þar eru 8 bæir, en búendur 28. Bæirnir heita Kvísker
austast, þá Hnappavellir, Fagurhólsmýri, Hofsnes, Hof,
Sandfeil, Svínafell og Skaftafell. — Öræfin eru einhver
lang afskjektasta sveitin á landinu, einangruð í fyllsta
máta, og er harla einkenniiegt, að þar skuli hafa við-
haldist bygð frá þvi á landnámsöld. Sveitin liggur eins
og þegar er getið milli tveggja sanda, sem taldir eru að
vera fullkomin dagleið, hvor fyrir sig, og á þessum sönd-
um eru einhver hin allra verstu jökulvötnin sem til eru
í Skaftafellssýslunum, en það eru Jökulsá á Breiðamerkur-
sandi og Skeiðará. Frá Kvískerjum að Skaftafelli er
hörð 6 klukkustunda reið. Á þessum jörðum, er áður
voru taldar, er einbýli á 3, Kvískerjum, Hofsnesi og
Sandfelli. Á Hofi og Hnappavölluin eru 7 búendur á
hvorri jörðinni. Fólksfjöldinn í Öræfunum er nú 216
manns. í allri sveitinni eru nálægt 60 kýr, yfir 1000
ær, um 700 sauðir, eldri en tvævetrir og 800—900 fjár
veturgamalt. — Búskapurinn gengur furðu vel, flestir
komast vel af fyrir sig; að eins 4 búendur eru biáfátækir
menn, en þiggja þó eigi af sveit. Einn þessara manna
á 8 börn, öll ung, 2 kýr, 8 ær, 3 hross, og heldur sér
þó frá sveit. Túd eru víða' lítil í Öræfum, en engjar
góðar, einkum á Fagurhólsmýri, Svínafelli og Sandfelli.
Slá menn þar sem bezt er sprottið 18—24 hesta á dag.
— Garðrækt er þar töluverð og hepnast oftast vel. Menn
afla þar sjálfir gulrófnafræs, bæði fyrir sig og til sölu.
Kýr mjóika þar eigi illa, ef þeirn er gefið sæmilega. Féð
er fremur rýrt. Sauðir 3—4 vetra skerast með 35—40
pd. falli, og 8—10 pd. allur mör. — Skilvindur eru 2 í
sveitinni.
Yfir höfuð virtist mér sveitin hrjóstug og eigi væn-
leg til framfara. En það er eigi hægt að kenna mönn-
unum, sem þar búa, um það. Eg efast meir að segja
um, að þar gætu aðrir komist af eða lifað en Öræfingar
sjálfir. Eigi verður þó sagt, að sveitinni sé áils góðs
varnað. Þar er trjáreki mikill, og styður hann að því,
3