Búnaðarrit - 01.01.1906, Blaðsíða 87
BÚNAÐARRIT
83
uin er það stjórn félagsins er ein ábyigist iánið, og oft
eni það fasteignarlán, eða með öðrum orðum, lán gegn
veði í fasteignum — húsum — félagsins. — Árið 1904
voru 331 féiag, er t.ekið höfðu'lán gegn fasteignarveði;
248, er skulduðu að meðaltali 3,865 kr. gegn ábyrgð fó-
lagsstjórnaiinnar, og 404 er skulduðu að meðaltali 4,265
kr. gegn almennri sjáifskuldarábyrgð.
í hverju félagi eru vanaiega 120—150 fólagar; þa,ð
eru til ekki svo fá félög með 50—100 fólaga, og einstök
með 5000 félaga. Mjög er það misjafnt hvað hver fé-
lagi verzlar mikið eða kaupir mikið af vörum. Það er
talið svo, að í hverju félagi séu að jafnaði 28 félagar, er
kaupa vörur fyrir 25 kr. og minna. Hinir eru allir þar
fyrir ofan. Einnig er það mjög mismunandi, hvað fé-
lögin verzla mikið. Talið er, að verzlunarupphæð hvers
félags só að meðaltali 25,000—35,000 kr.
Inngangseyrir eða inntökugjald félagsmanna, er 2—
4 kr., og rennur það í varasjóð. í varasjóð erogákveðið
í flestum félögunum að lagðar séu 5 °/0 af hreinum 'ágóða
fólagsverzlunarinnar. Varasjóðir fólaganna eru orðnir
1500—2000 kr., og sumir meira. — Þeir sem segja
sig úr félögunum fá ekki endurgreiddan inngangseyrir-
inn, en þar á móti stofn tillagið, hvað sem það nú
hefir verið.
Upphaflega var svo til ætlast, að kaupfélögin kæmu
á fót einskonar spajisjóðum í sambandi við verziun þeirra..
Þetta er mjög aiment í ensku kaupfóiögunum. Þar láta
félagsmenn lilut-gróða sinn standa inni í félögunum ó-
hreyfðau og ávaxtast. Þeir meira að segja leggja inn í
þessar sparisjóðsdeildir félaganna, alt það sem þeir geta
sparað við sig, og safna sér á þennan hátt töluverðu fé,.
er þeir geyma til styrktar sór á efri árunum. Til trygg-
ingar hafa svo sambandsfélögin umsjón með þessumu
sparisjóðsdeildum og hjálpa til að ávaxta féð. Sambands-
félögin starfa í þessu efni sem bankar; þau veita mót-
töku sparisjóðsíé, sem félögin hafa undir höndum, og
6*