Búnaðarrit - 01.01.1906, Blaðsíða 273
BÚNA Ð ARRITIÐ
267
51 þuml., allur fremur lítilfjörlegur; háls vel reist-
ur, brjóst góð, söðulhakaður, lendin nokkuð brött,
fætur sterklegir, útskeifur á framfótum einkum
þeim vinstri, nokkuð nágengur á öllum fótum.
Brokkgengur.
Fjórðu verðlaun 10 krónur.
15. Olói, eigandi Þorkell Jónsson Smádölum, undan rauð-
um foreldrum. Ljósrauður með Ijóst fax og tagl,
3 vetra, þuml. Fremur sterklegur, framlágur
lendbrattur, gleiðgengur á afturfótum og nástæður.
Klárgengur.
Fjórðu verðlaun 10 krónur.
16. Faxi, eigandi Magnús Jónsson Bryðjuholti, engar
upplýsingar um kynferði. Rauður með ljósara tagl
og fax, 4 vetra. Þunnvaxinn, merarlegur, sver
lágt settur háls, nokkuð söðulbakaður, lendin brött,.
toppar, afturmjó, nástæður á afturfótum. Brokkar vel.
Fjórðu verðlaun 10 krónur.
17. Mósi', eigandi Hildibrandur Gíslason Vetleifsholti,
undan bleikri hryssu, faðerni óþekt. Móálóttur, 4
vetra, 52^/2 þuml., stór en luralegur. Flöfuð stórt,
háls stuttur og sver, framlágur, nástæður og ná-
gengur á afturfótum, útskeifur á framfótum. Brokk-
gengur.
Fjórðu verðlaun 10 krónur.
Eigendur graðfola þeirra, sem merktir eru með
stjörnu (’) vildu eigi þyggja verðlaunin, þóttu þau of lág.
Dömnefnd: Eggert Benidiktsson Laugardælum,
Runólfur Halldórsson Rauðalæk og undirritaður.
II. Griöungar.
1. Slcjaldi, eign nnutgripafélags Hreppamanna, undan
Rauðbrá í Syðra-Langholti, sem mjólkað hefir tvö
undanfarin ár 3202 potta, að meðaltali í feitimagn
4,2°/o, faðerni ókunnugt. Rauðskjöldóttur, fæddur í
, .■ . . . ' : • l