Búnaðarrit - 01.01.1906, Blaðsíða 277
BÚNAÐARRITIÐ
271
Fluttar kr. 505,37
5. Leiga eftir sýriingarstaðinn og hjálp við út-
búnað sýningarsvæðisins...................... 14,00
6. Þóknuntil dómnefndaogsýningarnefndar, fyrir
skráningu gripanna, sölu á aðgöngumerkj-
um o. fl..................................... 62,50
Samtals kr. 581,87
Tekjuafgangur.....................................132,16
Samtals kr. 714,03
Tekjur sýningarinnar fram yfir útgjöld urðu þannig
132,16 kr. Orsökin til þess var sú, að eigendur 7 grað-
fola, er verðlaun áttu að hljóta, neituðu að taka á móti
þeim, eins og áður er frá skýrt. Við það spöruðust
130 krónur.
Tekjuafganginn ákvað sýningarnefndin að leggja á
vöxtu, og geyma til næstu héraðssýningar fyrir Árnes-
og Rangárvallasýslur, er væntanlega verður haldin á
sama stað sumaríð 1908.
Áður en eg lýk máli mínu, vil eg minnast nokkuð
nánar á sýningargripina.
Frá tölu þeirra og aldri er áður skýrt.
Það fyrsta sem hver athugull sýningargestur hlaut
að reka augun í, var hvað gripirnir voru misjafnir.
Nokkrir beztu griðungarnir og graðfolarnir voru ólastan-
legir, eftir því sem hægt er að búast við í landi, þar
sem allar kynbæt.ur eru i barndómi. Aftur var nokkuð
af gripunum, einkum graðfolunum, langt frá þvi að geta
kallast kynbótagripir. Af þeim 25 folum, sem á sýning-
una komu, átti að verðlauna 17, eins og áður er sagt.
Hina 8, sem eftir voru, áleit dómnefndin að eigi gæti
komið til mála að verðlauna, enda voru þeir flestir bæði
litlir og illa skapaðir, þrír 3 vetra t. d. að eins 48 þuml.
á hæð. Og efasamt er jafnvel, hvort rétt var að verð-
launa eins marga fola og gjört var. Þá hlið málsins