Búnaðarrit - 01.01.1906, Blaðsíða 101
BÚNAÐARRIT
97
fæt-t gott, og torf milli laga. Það er mikill koatur, sem
grjótið hefir fram yfir annað hleðsluefni, að það verður
notað til hleðslu um aldur og æfi, eftir að einu sinni er
búið að koma því að. Þar sem gott grjót er ófáanlegt,
og hnausstunga góð, áiit eg bezt að byggja úr klumbu-
hnaus og hafa streng eða torf milli laga..
Það er töluverður vandi að stinga klumbuhnaus svo
vel sé, nefnil. að hann fari vel í veggnum og að sem
minst þurfi að skera hann til. Eg álít nefndan hnaus
betri en kvíahnaus, því sá fyrnefndi verður ekki ómeð-
færilegur, þó hann sé alt að 1 al. á lengd, — semernóg
binding í hleðslu, — af því að annar endi hans myndar
svo að segja topp. Aðaigalli við hnaus, er, hve seinlegt
er að flytja hann, þar sem kerru verður ekki við komið.
Bezta aðferð við stungu á klumbuhnaus er þessi:
Fyrst eru stungnar t.vær raðir samhliða, með hér um
bii 8/4—1 al. miilibili og skóflunni þá stungið þverbeint
niður. Svo er hnausinn stunginn upp úr bilinu sem
milli verður þannig, að þeir liggi andfætis eða alt af haus við
sporð á víxl, er þá skóflunni hallað töluvert að sér að
ofan, og sem jafnast að verður. Betra er að mjórri
endi hnaussins sé dálítið stýfður, þ. e. a. s. endi ekki
alveg í toppi, því annars vill endinn brotna af í með-
ferðinni, og við það bindur hann lakar i veggnum. Hnaus-
inn þarf að vera sem jafnastur í hnakkann og ekki mjög
breiður. Skera verður neðan úr honum það, sem laus-
legt er, svo hann ekki skerist mikið niður við lagning-
una. Ómissandi er ef ástæður leyfa að st.inga hnausinn
sem fyrst að vorinu áður en jörð fer að gróa til muna
og hlaða honum laglega í bunka. Við það pressast úr
honum vatnið, hnausinn þéttist og verður léttari og þrifa-
legri í allri meðferð. Só hnausinn fullþurkaður getur
orðið óvinnandi að skera hann ti), einkum só sandur í
honum. Eins er betra að rista streng eða torf, sem
hafa á milli laga, nokkru áður og bunka, svo sigið geti
7