Hlín - 01.01.1949, Page 18
16
Hlín
vegna þess. En þá kom hjálpin. Dóttirin, sem var búin
að vera eitt ár að heiman í fjarlægu plássi, 17 ára gömul,
kom heim til að taka að sjer móður- og húsmóðurstarfið,
og hefur síðan staðið við hlið föður síns með þeim dugn-
aði og myndarskap, sem mun vera fátítt.
María sáluga var glæsileg kona á velli, vel greind oog
fylgdist með þvi, sem gerðist utan lands og innan. Hún
var ljóð- og söngelsk svo af bar. Hún var glaðlynd.og
gestrisin, og mun margur minnast ánægjulegra stunda á
heimili þeirra hjóna.
Maður getur varla áttað sig á því, að dauðinn berji að
dyrum á svona heimili og svifti burt móðurinni á besta
aldri, aðeins 43 ára að aldri. En alt hefur óefað sinn til-
gang.
Það er sannleikur, sem skáldið segir: „Að hryggjast og
og gleðjast hjer um fáa daga, að heilsast og kveðjast, það
er lífsins saga.“
Skrifað í okt. 1944.
Guðný Guðmundsclóltir,
Kolmúla.
Guðrún Ásgeirsdóttir Johnson,
Winnineg.
MINNING - 1868-1948
Guðrún Ásgeirsdóttir Johnson var fædd að Lund-
um í Stafholtstungum 17. febr. 1868. Hún var yngsta
dóttir foreldra sinna, Ásgeirs Finnbogasonar, danne-
brogsmanns, og Ragnhildar Ólafsdóttur.
Höfðu þau hjón bæði verið gift áður. Börn Ásgeirs
frá fyrra hjónabandi voru þau síra Þorvaldur Ásgeirsson,
er síðast var prestur í Blönduósssóknum og bjó á Hjalta-
bakka, frú Kristín Blöndal á Kornsá og frú Arndís Ás-
geirsdóttir á Blönduósi.
Börn frú Ragnliildar frá fyrra hjónabandi voru þau